Sammála því að erfitt haust sé í vændum Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 19. ágúst 2026 21:00 Kolbrún Halldórsdóttir formaður BHM og Þorsteinn Víglundsson formaður SI ræddu vaxtahækkanir í myndverinu. Vísir/Samsett „Þetta er afleit tímasetning,“ segir Kolbrún Halldórsdóttir formaður BHM um stýrivaxtahækkunina sem tilkynnt var í morgun. Hún bendir á að hagkerfið sé þegar farið að kólna og að aukið atvinnuleysi fylgi í kjölfarið.
Kolbrún og Þorsteinn Víglundsson formaður Samtaka iðnaðarins ræddu ábyrgð og næstu skref eftir að peningastefnunefnd tilkynnti um hækkun stýrivaxta í átta prósent í dag. Kolbrún gagnrýndi gjaldskrárhækkanir hins opinbera. Hún hafnar því einnig félagsmenn hennar njóti góðs af mun hagstæðari launaþróun. „Nú segi ég þér af heilum hug að innan okkar raða eru auðvitað mjög ólík félög. BHM hefur undir sinni regnhlíf 23 stéttarfélög. Þau eru ekki öll eins. Í svona stærri félögunum okkar þá held ég ég geti farið rétt með það að svona um 50% starfa bara á kjarasamningum, bara á launatöflum,“ sagði hún. „Þannig að það eru ekki þessir opinberu starfsmenn í okkar röðum sem að eru hálaunamennirnir. Hálaunafólkið er auðvitað það sem getur skammtað sér laun. Það eru þau sem hafa markaðstengingu og þau eru á almenna markaðnum. Launaskriðið er á almenna markaðnum. Við sáum það þegar launatöfluaukinn var greiddur fyrir ári síðan, að þá var hann greiddur til opinberra starfsmanna af því að launaskrið hafði orðið á almenna markaðnum,“ sagði hún svo. Útflutningsgreinarnar leiði ekki launaþróun Þorsteinn Víglundsson formaður SI sagði það engu að síður staðreynd að laun opinberra starfsmanna hafa hækkað talsvert umfram laun starfsmanna á almennum markaði. „Það er miður. Við tölum gjarnan um að sé mikilvægt að það sé verðmætasköpunin, útflutningsgreinarnar okkar, sem leiða það svigrúm sem sé til launabreytinga á hverjum tíma,“ sagði hann. Hann sagði Seðlabankann benda réttilega á að rót verðbólguvandans liggi í vinnumarkaðnum. „Við erum að hækka laun talsvert umfram svigrúm og það skýrir að stórum hluta þá verðbólgu sem við erum búin að vera að glíma við. Ekki bara síðastliðið ár heldur síðastliðna áratugi.“ Þorsteinn segir kólnunarmerkin augljós og tekur undir með Kolbrúnu að ákvörðun Seðlabankans hafi verið sér vonbrigði. „Ég tel þetta dómgreindarbrest af hálfu Seðlabankans að hækka vexti við það umhverfi sem við erum að glíma við í hagkerfinu í dag,“ sagði hann. Sendi SA tóninn Innt eftir því hvort Seðlabankastjóri sé ekki að kalla eftir ábyrgð meðal aðila vinnumarkaðarins segir Kolbrún það alveg rétt. Hann tali hins vegar frekar til þeirra sem greiði launin en þeirra sem þau þiggi. „Ég tók nú eftir því að hann var eiginlega að senda Bjarna Benediktssyni tóninn í dag. Fyrirtækin hafa auðvitað verið að skila ansi góðri afkomu og ef fyrirtækin standa ekki við það samkomulag sem gert var haustið 2024, um að skila einhverju af því sem að þau eru að bera úr býtum inn í kerfið okkar til þess að halda aftur af verðbólgu og vaxtastiginu, þá eru þau ekki að standa við samkomulagið frekar en hið opinbera sem er að hækka gjaldskrár,“ sagði Kolbrún. Eitt eru bæði Kolbrún og Þorsteinn sammála um, og það er að haustið verði erfitt.
Verðlag Seðlabankinn Kjaramál Efnahagsmál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Stéttarfélög Mest lesið Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Erlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Innlent Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Fleiri fréttir Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ Sjá meira