Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Árni Sæberg skrifar 20. ágúst 2026 14:31 Helgi Magnús Hermansson, Elís Árnason, fyrrverandi eigandi eins félagsins, og Jóhannes Birgir Skúlason. Facebook/Elís Árnason Skiptum er lokið á tveimur félögum í eigu veitingamannanna Helga Magnúsar Hermannssonar og Jóhannesar Birgis Skúlasonar án þess að króna fengist upp í kröfur. Kröfur námu alls um 375 milljónum króna. Félögin ráku staðina TGI Fridays og Adesso í Smáralind og Grillhúsið. Annað félagið var enn skráð á fyrri eiganda þess þegar það varð gjaldþrota, enda höfðu Helgi og Jóhannes ekki greitt fyrir það.
Þetta kemur fram í tveimur auglýsingum, sem skiptastjóri þrotabúa félaganna tveggja birti í Lögbirtingablaðinu í dag. Annars vegar er um félagið OL Restaurant & Sportbar ehf. að ræða en lýstar kröfur í þrotabú þess námu 167 milljónum króna. Félagið rak kaffihúsið Adesso til fjölda ára í Smáralind og Sport & Grill um nokkurra ára skeið í sömu verslunarmiðstöð. Eigandi þeirra staða seldi þeim Helga og Jóhannesi félagið árið 2024 og þeir opnuðu TGI Fridays þar sem Sport & Grill hafði verið. Þrátt fyrir að rekstur Adesso og Sports & Grills hefði gengið vel fór fljótlega að halla undan fæti eftir kaupin og félagið var komið í þrot innan árs frá þeim. Fékk aldrei greitt Elís Árnason, fyrrverandi eigandi Adesso og Sports & Grills, greindi frá því á Facebook í nóvember í fyrra að hann hefði aldrei fengið greitt fyrir félagið. „Kaupverðið átti að vera að fullu greitt 9. desember 2024 sem stóðst engan veginn og höfum við seljendur verið að gefa þeim slaka allar götur síðan þá þar sem þeir hafa alltaf sagt að þeir séu að vinna í málinu og þetta sé allt að koma,“ sagði Elís í færslunni. Hann sagði rekstur bæði Adesso og Sports & Grills hafa gengið vel og skilað hagnaði. Helga Magnúsi og Jóhannesi hefði tekist að keyra staðina í gjaldþrot á einu ári. Þá sakaði Elís Helga og Jóhannes einnig um að stunda fjársvik með því að nýta fjármuni Adesso til að greiða fyrir aðra staði í þeirra eigu, til að mynda Veisluna og Grillhúsið. „Ég er þannig innrættur að ég trúi alltaf á það besta í fólki (þrátt fyrir aðvaranir frá fjölskyldu og vinum) og átti það við í þessu tilfelli. Því miður. Þeir hafa semsagt ekki greitt okkur nema lítinn hluta kaupverðsins og á þessum tímapunkti lítur út fyrir að við fáum restina aldrei greiddar og eigendur sitji uppi með stórtjón.“ Samkvæmt fyrirtækjaskrá er Elís enn skráður eigandi OL Restaurant & Sportbar ehf. ásamt viðskiptafélaga sínum, enda fór félagið í þrot áður en Helgi og Jóhannes höfðu greitt fyrir það. Rúmlega 200 milljóna króna þrot eiganda Grillhússins Hitt félag þeirra Helga og Jóhannesar sem skiptum lauk á nýverið er Búsendi ehf. Það hét áður Grillhúsið ehf. en þeir keyptu Grillhúsið árið 2024. Félagið rak þá samnefnda staði á Laugavegi og Sprengisandi í Reykjavík. Samkvæmt auglýsingu í Lögbirtingablaðinu námu kröfur í búið alls 208 milljónum króna, án þess að nokkuð fengist upp í þær. Ekki fyrsta gjaldþrotið Framangreind gjaldþrot eru ekki þau einu sem tengjast viðskiptafélögunum. Skiptum á þrotabúi Tanksins ehf., sem hélt um tíma utan um eignarhald þeirra á TGI Fridays og Grillhúsinu lauk í júní í fyrra. Þá fékkst ekkert upp í 277 milljóna kröfur. Þá var veisluþjónustan Veislan á Seltjarnarnesi tekin til gjaldþrotaskipta í nóvember í fyrra. Helgi Magnús er einn skráður eigandi þess félags.
Gjaldþrot Veitingastaðir Smáralind Kaup og sala fyrirtækja Kópavogur Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Sjá meira