Örn verður framkvæmdastjóri HÍ Agnar Már Másson skrifar 21. ágúst 2026 10:31 Örn Guðmundsson er fræðimaður á sviði alþjóðaviðskipta. Aðsend Örn Guðmundsson alþjóðaviðskiptafræðingur hefur verið ráðinn í starf framkvæmdastjóra Háskóla Íslands. Hann tekur við af Guðmundi Ragnari Jónssyni sem fer á eftirlaun eftir áramót.
Háskólinn greinir frá þessu í tilkynningu. Þar segir að Örn hafi lokið Cand.oecon. prófi frá Háskóla Íslands árið 1996 og meistaragráðu í alþjóðaviðskiptum frá Copenhagen Business School árið 1998. Framkvæmdastjóri Háskólans leiðir hluta sameiginlegrar stjórnsýslu Háskóla Íslands í umboði rektors. Hann hefur yfirumsjón með fjármálasviði, framkvæmda- og tæknisviði, mannauðssviði og upplýsingatæknisviði. Örn hefur gegnt störfum framkvæmdastjóra, fjármálastjóra, aðstoðarframkvæmdastjóra og forstöðumanns hjá stórum skipulagsheildum, að því er fram kemur í tilkynningunni. Örn var framkvæmdastjóri Mannvits hf. á árunum 2018–2023 og síðar framkvæmdastjóri COWI Ísland ehf. 2023–2024. Hann gegndi starfi fjármálastjóra Mannvits hf. á árunum 2015–2018 og þar áður var hann aðstoðarframkvæmdastjóri hjá Kaupþingi hf. á árunum 2009–2015. Örn situr í bankaráði Landsbankans, hefur gegnt formennsku í endurskoðunarnefnd og áhættunefnd bankans og er stjórnarformaður Almenningssamgangna höfuðborgarsvæðisins ohf. sem er í eigu ríkis og sveitarfélaga. Þá segir að hann hafi borið ábyrgð á fjárhagsáætlanagerð, fjármögnun, áhættustýringu og rekstrarlegri þróun fyrirtækja um langt árabil. Haft er eftir Erni að það sé honum mikill heiður að ganga til liðs við Háskóla Íslands. „Ég hlakka til að kynnast öflugu starfsfólki skólans og vinna með því að áframhaldandi þróun skólans, traustum rekstri og góðri þjónustu við háskólasamfélagið,“ er haft eftir honum. Þá segir rektor að háskólinn sé heppinn að fá Örn til liðs við sig. „Hann tekur við af Guðmundi Ragnari Jónssyni sem fer á eftirlaun eftir áramót. Það er ómetanlegt að þeir geti starfað saman næstu mánuði enda er rekstur skólans bæði umfangsmikill og flókinn. Ég hlakka til að vinna með Erni að því að styrkja rekstur háskólans og gera góðan vinnustað enn betri,“ segir Silja Bára R. Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands, að því er fram kemur í tilkynningunni.
Háskólar Tímamót Vistaskipti Skóla- og menntamál Mest lesið Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Á annað hundrað sektaðir Innlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Fleiri fréttir Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Sjá meira