Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Áróra L Davíðsdóttir skrifar 23. ágúst 2026 17:26 Aðstoðarmaður Þorgerðar Katrínar utanríkisráðherra segir Þorgerði hafa fundað með Ásgeiri Jónssyni, Seðlabankastjóra til að ræða stöðu heimsmála. Samsett Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir fundaði með Ásgeiri Jónssyni skömmu fyrir vaxtahækkunarákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankans í síðustu viku. Aðstoðarmaður Þorgerðar segir vaxtaákvörðunina ekki hafa verið rædda á fundi þeirra.
Hörður Ægisson, ritstjóri Innherja, sagði í nýjasta þætti Þjóðmála frá því á föstudaginn að sést hefði til Þorgerðar á hádegisverðarfundi með Ásgeiri í húsakynnum Seðlabankans. Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands ákvað á miðvikudag í síðustu viku að hækka stýrivexti um 0,25 prósentustig. Þeir eru nú 8 prósent. „Ég frétti af því í síðustu viku, svona korteri í vaxtaákvörðunarfund peningastefnunefndar, að þá hefði Þorgerður Katrín utanríkisráðherra sést á hádegisverðarfundi með Seðlabankastjóra uppi í Seðlabanka. Það sætir tíðindum að leiðtogar ríkisstjórnarinnar, sérstaklega utanríkisráðherra sem alla jafna hefur nú ekki mikið um málefni Seðlabankans að gera, séu að hitta seðlabankastjóra nokkrum dögum fyrir vaxtaákvörðunarfund,“ segir Hörður í Þjóðmálum. Spyr sig hvort að ráðherrann treysti ekki sjálfstæði Seðlabankans Að sögn Harðar sætir fundurinn sérstaklega tíðindum í ljósi þess að stundum hafi andað köldu milli Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra og Viðreisnar. Hann telji eðlilegt að spyrja sig þeirrar spurningar hvort utanríkisráðherra treysti ekki sjálfstæði Seðlabankans. Hér má finna þátt Þjóðmála sem um ræðir: Rætt er um fundinn um það bil frá mínútu 45 til 49. „Hvort utanríkisráðherra hafi haft áhyggjur af því að seðlabankastjóri eða aðrir stjórnendur Seðlabankans myndu, á kynningarfundi Seðlabankans sem fór fram á miðvikudaginn, blanda sér með einhverjum hætti í umræðuna um þetta eldfima mál, kosninguna um að hefja á ný aðildarviðræður við ESB,“ segir Hörður. Greinilega hafi einhverrar tortryggni gætt af hálfu Þorgerðar í garð Seðlabankans. „Það væri alveg svona áhugavert að fá kannski einhverjar upplýsingar á borðið frá utanríkisráðherra,“ segir Hörður. Aðstoðarmaður Þorgerðar Katrínar utanríkisráðherra, Ingileif Friðriksdóttir, sagði í svari við fyrirspurn fréttastofu að Þorgerður, líkt og forverar hennar í starfi, hefði fundað með Seðlabankastjóra til þess að ræða stöðu heimsmála. Vaxtaákvörðun peningastefnunefndar hefði ekki verið rædd á fundi þeirra á dögunum. Ekki er nánar tilgreint hvað hafi farið fram þeirra á milli.
Seðlabankinn Utanríkismál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Efnahagsmál Mest lesið Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Erlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Innlent Fleiri fréttir Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Sjá meira