Innkalla milljónir bíla vegna innfelldra hurðahúna Samúel Karl Ólason skrifar 24. ágúst 2026 08:55 Tsla var fyrst til að framleiða bíla með innfelda hurðahúna. Sú hönnun hefur í kjölfarið verið notuð á fjölda rafmagnsbíla. EPA/JESSICA LEE Yfirvöld í Kína hafa gert bílaframleiðendum að innkalla um 4,3 milljónir rafmagnsbíla þar í landi vegna innfelldra hurðahúna. Þeir hafa verið bannaðir í Kína en eftir að hurðahúnarnir hafa verið bendlaðir við dauðsföll í tveimur slysum í Kína hefur aukinn þrýstingur verið settur á forsvarsmenn bílafyrirtækjanna um að bæta hönnun bílanna og þá sérstaklega hurðahúnanna.
Innköllunin nær til bíla frá Tesla, XPeng, Xiaomi og Geely. Í flestum, ef ekki öllum, tilfellum er um stærstu innkallanir fyrirtækjanna að ræða. Hurðahúnar eins og þeir sem um ræðir sáust fyrst á Teslum en eru nú algengir á mörgum rafmagnsbílum. Þeir eru látnir falla inn í hurð bílanna og í sumum tilfellum eru þeir hannaðir til að opnast út þegar eigandi bílsins nálgast hann. Tvö banaslys sem tengjast rafmagnsbílum Xiaomi í Kína hafa ýtt undir reiði í garð þessara hurðahúna. Í slysunum biluðu rafmagnskerfi bílanna og reyndist ekki hægt að opna hurðarnar á þeim, samkvæmt frétt BBC. Forsvarsmenn Tesla gáfu á föstudaginn út tilkynningu um að verið væri að innkalla nokkrar týpur bíla fyrirtækisins í Kína. Til stendur að koma fyrir viðvörunarmiðum á bílunum og gera hugbúnaðarbreytingar sem eiga að sjá til þess að þegar bílarnir lenda í árekstri þá lækki rúðurnar. Enn sem komið er liggur ekki fyrir hvort grípa eigi til svipaðra aðgerða annars staðar í heiminum. Eins og áður segir bönnuðu ráðamenn í Kína innfellda hurðahúna fyrr árinu. Bannið tekur gildi um næstu áramót og verður þá ólöglegt að selja bíla í Kína nema þeir hafi hefðbundna hurðahúna, sem þarfnast ekki rafmagns, beggja megin á öllum hurðum. Sambærilegt frumvarp hefur verið lagt fram á þingi í Bandaríkjunum og eftirlitsstofnanir í Evrópu hafa einnig kallað eftir aðgerðum vegna innfelldra hurðahúna. Í frétt Reuters er haft eftir sérfræðingi að rafmagnsopnanir á bílahurðum hafi orðið til vandræða. Í sumum rafmagnsbílum séu sérstök kerfi til að opna dyr innan frá án rafmagns, eins og með því að toga tvisvar sinnum í hurðahúninn. Í Teslum sé þetta kerfi þó í mörgum tilfellum illfinnanlegt og ómerkt. Í Kína stendur til að merkja það betur. Í Bandaríkjunum hafa þó nokkur dómsmál verið höfðuð gegn Tesla þar sem því hefur verið haldið fram að farþegar eða ökumenn hafi slasast eða jafnvel dáið eftir að hafa fests inni í logandi bíl. Ökumenn hafa einnig kvartað til yfirvalda í Bandaríkjunum yfir því að hafa ekki getað náð börnum sínum út úr bílum.
Kína Bílar Tesla Mest lesið Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Lagarde hættir snemma sem seðlabankastjóri Eigandi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda Bjóða fjórðungi starfsfólks Microsoft starfslokasamninga Norskir fjölmiðlar í hart við Meta EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Skoða að sameina Tesla og SpaceX Klámfengið spjallmenni Zuckerbergs vekur ugg innan klámgeirans Sýndu fljúgandi Roadster Netflix segir upp þúsund starfsmönnum Starfsmaður OpenAI rekinn fyrir njósnir Bein útsending: Hver hlýtur hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans? Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Sjá meira