Fólkið eða peningarnir? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar 25. ágúst 2026 10:11 Við höfum séð og vitað lengi að Ísland er ekki bara stórkostlegt land, heldur land með miklar auðlindir – í fólkinu og náttúrunni. Það sem við höfum hins vegar einnig séð frá því um aldamót, og þá sérstaklega frá bankahruninu, er aukin misskipting – misskipting sem enginn bað um og sem er falin á húsnæðismarkaðnum og í kaupmáttarmælingum sem fela þann ólíka húsnæðis- og vaxtakostnað sem heimilin bera. Ég hef áður skrifað greinar um ESB-umræðuna, oft með fókusinn á húsnæðismarkaðinn. Samkvæmt bestu staðfestu tölum sem ég finn bjuggu 87% landsmanna í eigin húsnæði árið 2005. Síðasta landsmat HMS sýnir að hlutfallið var komið niður í 61% árið 2025, einungis 20 árum síðar. Þetta eru hættumerki sem ber að hafa í huga þegar kemur að framtíð unga fólksins okkar. Þá hefur húsnæðisverð á höfuðborgarsvæðinu hækkað um 150–170% umfram almennt verðlag frá aldamótum. Morgunblaðið greindi jafnframt frá því, með vísan til mánaðarskýrslu HMS, að húsnæðisverð á Íslandi hefði hækkað um 103% að raunvirði á einungis tíu árum, á meðan sambærileg hækkun innan Evrópusambandsins var 24%. Við skulum því ekki ræða það frekar hér, heldur getið þið lesið heimildirnar hér að ofan, viljið þið fræðast meira um þessa misskiptingu sem jú, enginn bað um. Þetta er hið óbreytta ástand sem fjársterkir hagsmunir hafa ástæðu til að verja. Allt bendir einnig til þess að mun meira fjármagn sé að baki nei-hreyfingunni en já-hreyfingunni. Í Pallborði Vísis gerðu já-hóparnir grein fyrir fjármögnun sinni, en fulltrúi Áfram Íslands gat ekki gefið upp hvað hreyfingin hygðist verja til baráttunnar. Þar kom fram það mat að Áfram Ísland kynni að hafa 200–300 milljónir króna til ráðstöfunar, eða þrisvar til fjórum sinnum meira en stærsti já-hópurinn. Umfang auglýsinganna blasir raunar við víðs vegar í kringum okkur. Fólk ætti líka að spyrja sig einfaldrar spurningar: „Ef ekkert er um að semja, af hverju fáum við þá ekki bara samning í næstu viku og skrifum undir hann – eða ekki?“ Í þessari baráttu hefur fjöldi fólks lagt sitt á vogarskálarnar gegn fjársterkum sérhagsmunum, aðkeyptum álitsgjöfum og leigupennum þeirra sem berjast fyrir óbreyttu ástandi. Því fólki þakka ég sérstaklega fyrir baráttuna, fyrir hönd sonar míns og unga fólksins á Íslandi. Ég vona að baráttan skili árangri gegn því ofurefli sem við er að etja. Fólk þarf að hugsa sjálfstætt, láta ekki plata sig og leita sjálft að heimildum fyrir því sem sagt er við það. Við megum ekki láta fjársterka aðila stjórna því hvað við kjósum með því að spila á tilfinningar okkar. Allir geta einfaldlega farið inn á þjóðaratkvæði.is og kynnt sér svör um kosninguna, aðildarviðræðurnar og Evrópusambandið. Kynningarefnið er gefið út á grundvelli kosningalaga, textinn unninn af Lagastofnun Háskóla Íslands og vefurinn er í umsjón Landskjörstjórnar. Þar er því um opinberar upplýsingar að ræða, ekki málflutning frá öðrum hvorum kosningahópnum. Ég enda á varnaðarorðum sem eiga vel við þær aðstæður sem við finnum okkur í í dag. Í grein sem birtist í breska blaðinu The Guardian undir fyrirsögninni Hvernig tæknin raskaði sannleikanum (How technology disrupted the truth) er haft eftir Arron Banks, einum þeirra fimm auðkýfinga sem stóðu undir stærstum hluta fjármögnunar Leave-hreyfingarinnar í aðdraganda Brexit: „Facts don’t work.“ Eða: Staðreyndir virka ekki. Að hans mati var betra að höfða til tilfinninga fólks en staðreynda. Bretar súpa seyðið af þeirri ákvörðun í dag. Munurinn er þó grundvallaratriði: Þeir kusu um að segja upp samningi sem lá fyrir og vissu – eða áttu að vita – hvað hann fól í sér. Við erum aðeins að kjósa um að hefja samningaviðræður og fá niðurstöðu sem þjóðin getur síðan samþykkt eða hafnað. Vonum því að fólkið vinni þessar kosningar, ekki peningarnir. Höfundur er stafrænn hönnuður og áhugamaður um samfélagsmál. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Yngvi Ómar Sigrúnarson Mest lesið Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson Skoðun Að eldast er að lifa Halldór S. Guðmundsson,Sirrý Sif Sigurlaugardóttir Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason Skoðun Skoðun Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Líknarslæving, dánaraðstoð og rétturinn til að velja Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson skrifar Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Sjá meira
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun