Spánverjar vilja íslenskan sjávarútveg Gunnar Bragi Sveinsson skrifar 25. ágúst 2026 10:20 Utanríkisráðherra hefur forðast að skýra nákvæmlega hvernig hún hyggst tryggja alger yfirráð yfir íslenskum auðlindum, þ.m.t. sjávarútvegi. Í nýlegu viðtali á Sýn neitaði ráðherrann að taka af allan vafa um yfirráð Íslendinga yfir sjávarútveginum og þá hvernig auðlindin yrði nýtt. En segjum sem svo að við fáum ráðið hvernig veiðum er háttað við strendur landsins þá er eitt alveg ljóst að varanleg undanþága frá einu af fjórfrelsum ESB, frjálsu flæði fjármagns og þar með talið fjárfestinga í sjávarútvegi, verður ekki samþykkt. Ráðherrann svarar ekki skýrt því hún veit að slík undanþága fæst ekki. Upplýsingar frá utanríkisráðuneytinu sýna að sumarið 2009 gerðu Spánverjar Íslendingum ljóst að þeir myndu aldrei samþykkja slíka undanþágu og nýverið sáum við hið sama hjá m.a. Hollendingum. Einnig kemur fram hjá ráðuneytinu að: „Skoðað var hvernig Danir hafa nánast náð að koma í veg fyrir erlendar fjárfestingar m.a. með búsetuskilyrðum, innanlandsreglum sem ekki hafa verið taldar brjóta Evrópurétt. Þær eru hins vegar hvorki hluti af aðildarsamningi þeirra né formlega hluti reglna ESB sjálfs. Þannig er augljósa áhættan sem felst í því að nota þær reglur, án staðfestingar í aðildarsamningi, sú að þær kunna að verða dæmdar fara gegn sáttmála ESB.“ Þegar ráðherrann verður búinn að samþykkja fjárfestingar í sjávarútvegi munu verðmæti íslenskra útgerða hækka gríðarlega og eigendur þeirra verða ríkari en nokkru sinni. Slegist verður um að eignast íslensku sjávarútvegsfyrirtækin til að komast í auðlindina. Þá verður það eingöngu samviska þessa dugmikla fólks sem ræður því hvort Íslendingar, Spánverjar, Hollendingar, Frakkar eða aðrir muni veiða fiskinn og e.t.v. vinna hann í verksmiðjuskipum fjarri landi undir merkjum Evrópusambandsins. Nei, 29. ágúst er eina leiðin til að koma í veg fyrir það. Höfundur er fyrrverandi utanríkis-, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Draumsýn menntamála Álfhildur Leifsdóttir ,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Sjá meira
Utanríkisráðherra hefur forðast að skýra nákvæmlega hvernig hún hyggst tryggja alger yfirráð yfir íslenskum auðlindum, þ.m.t. sjávarútvegi. Í nýlegu viðtali á Sýn neitaði ráðherrann að taka af allan vafa um yfirráð Íslendinga yfir sjávarútveginum og þá hvernig auðlindin yrði nýtt. En segjum sem svo að við fáum ráðið hvernig veiðum er háttað við strendur landsins þá er eitt alveg ljóst að varanleg undanþága frá einu af fjórfrelsum ESB, frjálsu flæði fjármagns og þar með talið fjárfestinga í sjávarútvegi, verður ekki samþykkt. Ráðherrann svarar ekki skýrt því hún veit að slík undanþága fæst ekki. Upplýsingar frá utanríkisráðuneytinu sýna að sumarið 2009 gerðu Spánverjar Íslendingum ljóst að þeir myndu aldrei samþykkja slíka undanþágu og nýverið sáum við hið sama hjá m.a. Hollendingum. Einnig kemur fram hjá ráðuneytinu að: „Skoðað var hvernig Danir hafa nánast náð að koma í veg fyrir erlendar fjárfestingar m.a. með búsetuskilyrðum, innanlandsreglum sem ekki hafa verið taldar brjóta Evrópurétt. Þær eru hins vegar hvorki hluti af aðildarsamningi þeirra né formlega hluti reglna ESB sjálfs. Þannig er augljósa áhættan sem felst í því að nota þær reglur, án staðfestingar í aðildarsamningi, sú að þær kunna að verða dæmdar fara gegn sáttmála ESB.“ Þegar ráðherrann verður búinn að samþykkja fjárfestingar í sjávarútvegi munu verðmæti íslenskra útgerða hækka gríðarlega og eigendur þeirra verða ríkari en nokkru sinni. Slegist verður um að eignast íslensku sjávarútvegsfyrirtækin til að komast í auðlindina. Þá verður það eingöngu samviska þessa dugmikla fólks sem ræður því hvort Íslendingar, Spánverjar, Hollendingar, Frakkar eða aðrir muni veiða fiskinn og e.t.v. vinna hann í verksmiðjuskipum fjarri landi undir merkjum Evrópusambandsins. Nei, 29. ágúst er eina leiðin til að koma í veg fyrir það. Höfundur er fyrrverandi utanríkis-, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar