Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar 26. ágúst 2026 07:31 Skipulögð brotastarfsemi hefur á undanförnum árum orðið umfangsmeiri og aðferðir brotahópa þróaðri og fjölbreyttari. Það kallar á öflug og samstillt viðbrögð þvert á ýmsa aðila m.a. stjórnvalda, löggæslu og atvinnulífsins. Mikilvægt er að löggjöf, rannsóknarheimildir og viðbúnaður þeirra sem fara með rannsókn og saksókn brota sæti framþróun í takt við breyttan veruleika. Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu (SFF) hafa skilað umsögn um áform dómsmálaráðuneytisins um aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi, sem birt voru til umsagnar í Samráðsgátt stjórnvalda. SFF fagna áformunum og telja þau mikilvægt skref í þá átt að styrkja varnir samfélagsins. Áformin gefa tilefni til væntinga um að hægt verði að bæta umgjörð rannsókna og viðbragða við skipulagðri brotastarfsemi og skapa betri forsendur fyrir markvissari aðgerðum gegn þeim sem hana stunda. Í umsögn SFF er jafnframt lögð áhersla á að árangur ráðist ekki eingöngu af lagabreytingum. Tryggja þurfi jafnframt að lögregla og ákæruvald hafi fullnægjandi heimildir, þekkingu, mannafla og tæknilega getu til að nýta þau úrræði sem lögin veita. Þá skipti miklu að samstarf og upplýsingamiðlun milli stjórnvalda, löggæslu og atvinnulífsins sé skilvirk. Þróunin hér á landi er áhyggjuefni Í skýrslu ríkislögreglustjóra um skipulagða brotastarfsemi á Íslandi, sem kom út í nóvember 2025, kemur fram að skipulögðum brotahópum hafi fjölgað um helming á síðasta áratug. Jafnframt megi greina stigmögnun í starfsemi þeirra hér á landi undanfarin fimm ár, meðal annars með umfangsmeiri brotum og aukinni aðsókn erlendra brotahópa hingað til lands. Umhverfi skipulagðrar brotastarfsemi hefur einnig tekið miklum breytingum. Tækniframfarir og aukin alþjóðleg tengsl gera brotahópum kleift að starfa þvert á landamæri og aðferðir sem þekkjast erlendis geta borist hratt hiSngað til lands. Þróunin undirstrikar mikilvægi þess að íslensk stjórnvöld og löggæsla hafi bæði heimildir og getu til að bregðast við breyttum aðferðum. SFF hafa vakið athygli á vísbendingum um vaxandi umfang svika í tengslum við skipulagða brotahópa m.a. þegar kemur að tryggingasvikum. Það virðist bera á aukningu slíkra mála og vísbendingar eru um að skipulagðir brotahópar beiti tryggingasvikum markvisst til fjáröflunar. Þetta er ein af mörgum birtingarmyndum þess hvernig skipulögð brotastarfsemi getur komið fyrir sjónir. Þá eru oft tengsl á milli ólíkra brota, þar sem brotahópar sérhæfa sig ekki endilega í einni tegund brota. Mikilvægt að styrkja viðbrögðin Þróunin sýnir að mikilvægt er að horfa heildstætt á skipulagða brotastarfsemi og bregðast við henni áður en hún nær frekari fótfestu. Brotahópar laga starfsemi sína hratt að breyttum aðstæðum og nýta sér tækni og veikleika þar sem þá er að finna. Viðbrögð samfélagsins þurfa að þróast með sama hætti. Baráttan gegn skipulagðri brotastarfsemi verður ekki unnin af einum aðila. Samstarf og upplýsingamiðlun milli stjórnvalda, löggæslu, atvinnulífsins og annarra skiptir þar miklu máli. Áform dómsmálaráðuneytisins eru að mati SFF jákvætt og tímabært skref. Standa vonir til þess að með þeim verði unnt að styrkja umgjörð baráttunnar gegn skipulagðri brotastarfsemi og bæta getu samfélagsins til að bregðast við þeirri þróun sem átt hefur sér stað undanfarin ár. SFF benda sérstaklega á að til þess þarf að tryggja að lögregla og ákæruvald hafi fullnægjandi heimildir, úrræði og getu og að samstarf þeirra aðila sem koma að málaflokknum sé öflugt. Einnig má telja að það sé afar mikilvægt er að aðgerðir séu sýnilegar til að auka forvarnir. SFF og aðildarfyrirtæki samtakanna eru reiðubúin til virks og uppbyggilegs samtals við stjórnvöld og löggæsluyfirvöld og til að leggja sitt af mörkum við frekari mótun og framkvæmd aðgerða. Sameiginlegt markmið þarf að vera að þær leiðir sem verða valdar séu markvissar, framkvæmanlegar og til þess fallnar að skila raunverulegum árangri í baráttunni gegn skipulagðri brotastarfsemi. Höfundur er yfirlögfræðingur Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Fjármálafyrirtæki Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Draumsýn menntamála Álfhildur Leifsdóttir ,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Sjá meira
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar