Tvöfalt fleiri andvígir loðdýrarækt á Íslandi en hlynntir Áróra L Davíðsdóttir skrifar 26. ágúst 2026 11:55 Rúmlega helmingur, eða 52,6 prósent yngsta aldurshópsins, 18-29 ára, segist fremur eða mjög andvígur loðdýrarækt á Íslandi. Vísir/Lýður Valberg Tvöfalt fleiri eru andvígir loðdýrarækt en hlynntir henni samkvæmt nýrri könnun sem Maskína gerði fyrir Samtök um dýravelferð á Íslandi. Andstaða við loðdýrarækt er sterk meðal kvenna og háskólamenntaðra.
Spurt var: „Hversu hlynnt(ur) eða andvíg(ur/t) ert þú loðdýrarækt á Íslandi?“ Alls 42 prósent eru fremur eða mjög andvíg loðdýrarækt en 20 prósent fremur eða mjög hlynnt. 38 prósent svarenda segjast vera í meðallagi hlynnt eða andvíg loðdýrarækt á Íslandi. Rúmur helmingur kvenna er fremur eða mjög andvígur samanborið við tæp 35 prósent karla. Andstaða við loðdýrarækt er sterkust meðal háskólamenntaðra, en tæp 53 prósent þeirra segjast fremur eða mjög andvígir samanborið við tæp 36 prósent bæði þeirra með grunnskólapróf og þeirra með framhaldsskólapróf eða iðnmenntun. Andstaðan við loðdýrarækt er sterkari meðal íbúa höfuðborgarsvæðisins og Austurlands en annars staðar á landinu. 47 prósent íbúa Austurlands segjast fremur eða mjög andvígir og rúm 54 prósent íbúa höfuðborgarsvæðisins. 38,6 prósent íbúa á Vesturlandi og Vestfjörðum segjast fremur eða mjög hlynntir loðdýrarækt. Þegar spurt er sérstaklega um áhættuna sem fylgir ræktun minks, sem sé framandi og ágeng tegund á Íslandi, svara 41,9% að áhættan sé ekki ásættanleg og að hætta eigi loðdýrarækt með minkum, samanborið við 27,8% sem telja að ræktuninni eigi að halda áfram. 30,3 prósent segjast ekki vita eða ekki hafa tekið afstöðu. Niðurstöðurnar komi ekki á óvart Rósa Líf Darradóttir, formaður Samtaka um dýravelferð á Íslandi, segir niðurstöðuna sýna að stuðningur við loðdýrarækt sé lítill og að mun fleiri vilji hætta starfseminni en halda henni áfram. „Það kemur okkur ekki á óvart. Aukin þekking á velferð dýra hefur sýnt að ómögulegt er að réttlæta það að halda dýrum í búrum alla ævi til þess eins að nýta feld þeirra,“ skrifar Rósa í tilkynningu frá samtökunum. „Það liggur í augum uppi hvert næsta skref er. Starfsemin hér á landi er orðin mjög takmörkuð, minkur er framandi og ágeng tegund og opinbert fé hefur ítrekað farið í að styðja við starfsemina. Fjöldi Evrópuríkja hefur þegar ákveðið að loðdýrarækt eigi ekki heima í nútímasamfélagi. Ísland hefur alla burði til að standa framarlega þegar kemur að dýravelferð og vernd náttúrunnar. Nú verða stjórnvöld að gera hið rétta, svara kalli tímans og banna loðdýrarækt á Íslandi,“ skrifar hún.
Skoðanakannanir Loðdýrarækt Dýr Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira