Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Freyja Þórisdóttir skrifar 26. ágúst 2026 23:34 Brynjar Már Brynjólfsson hefur verið ráðinn í stöðu leiðtoga vaxtar og viðskiptaþróunar hjá Corus Aðsend Brynjar Már Brynjólfsson hefur verið ráðinn í stöðu leiðtoga vaxtar og viðskiptaþróunar hjá Corus. Í starfinu mun hann leiða samstarf við viðskiptavini félagsins og tengja saman ráðgjöf, sölu og vöruþróun. Hann hefur áður starfað hjá Isavia, RB, Origo og Kjarna. Brynjar mun hefja störf hjá félaginu á næstu vikum.
Er þetta meðal þess sem fram kemur í tilkynningu en þar segir einnig að Brynjar búi yfir víðtækri reynslu úr mannauðsstjórnun, vöruþróun og rekstri. Hann komi yfir til Corus frá Isavia, þar sem hann gegndi starfi mannauðsstjóra síðastliðin fimm ár. Fengur fyrir félagið Áður starfaði Brynjar sem mannauðsstjóri hjá RB, sem verkefnastjóri í mannauðsteymi Origo og sem ráðgjafi í vöruþróunarteymi Kjarna, mannauðs- og launakerfis. Þá hafi Brynjar jafnframt verið virkur í fagfélagi mannauðsfólks til fjölda ára og gegnt þar formennsku. „Það er gríðarlegur fengur fyrir Corus að fá Brynjar í okkar raðir. Hann er einn sterkasti fagaðilinn í mannauðsheiminum á Íslandi í dag og nýtur trausts og virðingar langt út fyrir okkar raðir,“ er haft eftir Dröfn Guðmundsdóttur, framkvæmdastjóra Corus. „Brynjar þekkir lausnir okkar og notendaupplifunina í kringum þær betur en flestir og reynsla hans mun nýtast okkur beint í að þróa Kjarna og Moodup enn frekar í takt við þarfir viðskiptavina. Ég hlakka til að fylgja Brynjari og teyminu inn í næsta vaxtarskeið Corus.“ Tækifæri til að sameina tvennt Í tilkynningunni segir að ráðning Brynjars sé liður í áframhaldandi uppbyggingu Corus, þar sem félagið leggi aukna áherslu á að tengja saman ráðgjöf, sölu og vöruþróun til að tryggja samræmda upplifun viðskiptavina. Eftir Brynjari sjálfum er haft að hann hafi mikla ástríðu fyrir mannauðsmálum – en líka fyrir tækni og þeim tækifærum sem hún skapar. „Tæknin gefur okkur í dag tækifæri til að endurhugsa hvernig við vinnum, hvernig við leiðum fólk og hvernig fyrirtæki ná árangri. Hjá Corus fæ ég tækifæri til að sameina þetta tvennt, mannauðsmál og tækni,“ er haft eftir honum og áfram „hjá félaginu starfar einvala lið sérfræðinga sem þróar og þjónustar lausnir sem ég hef sjálfur nýtt með frábærum árangri sem mannauðsstjóri. Það er því mikil tilhlökkun að taka næsta skref með starfsfólki Corus.“
Vistaskipti Mannauðsmál Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Sjá meira