Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Smári Jökull Jónsson skrifar 28. ágúst 2026 20:01 Tugþúsundir hafa staðið í súldinni í kvöld og lagt blóm við norsku konungshöllina. AP Hákon áttundi mun sverja embættiseið sem þjóðarleiðtogi Norðmanna á þriðjudag en faðir hans Haraldur fimmti Noregskonungur lést snemma í morgun. Haraldur, sem stundum var kallaður afi allra Norðmanna, verður borinn til grafar á sunnudag.
Þjóðarsorg hefur verið lýst yfir í Noregi eftir að Haraldur fimmti Noregskonungur lést í morgun áttatíu og níu ára að aldri. Haraldur hafði verið konungur síðan 1991 en nú tekur sonur hans, Hákon áttundi, við krúnunni og mun formlega sverja embættiseið á þriðjudag. Jonas Gahr Støre forsætisráðherra Noregs sagði í ávarpi að heil þjóð syrgði nú konung sinn og að heil þjóð þakkaði honum fyrir allt. Mikill mannfjöldi hefur í dag safnast saman á Hallartorginu í Ósló til að minnast Haraldar. „Eins og hefur áður verið sagt þá var hann afi allra. Hann var góður, hann leit aldrei á trúarbrögð, kyn eða neitt slíkt heldur tók öllum eins og þeir voru. Hann var konungur fólksins,“ sagði ung norsk kona sem mætt var á Hallartorgið. Hjartfólginn þjóðinni Traust til konungsfjölskyldunnar hefur farið niður á við síðustu misseri meðal annars í kjölfar frétta af afbrotum stjúpsonar verðandi konungs, Mariusar Høiby. Traust Norðmanna til Haraldar konungs var þó í hæstu hæðum fram til hans síðasta dags. Ýmsir hafa í dag minnst ræðu hans eftir hryðjuverkaárásirnar í Ósló og Útey árið 2011 sem einu af hjartnæmustu augnablikunum í hans valdatíð. Fjölmargir þjóðarleiðtogar hafa minnst Haraldar í dag, bæði Halla Tómasdóttir forseti Íslands og Guðni Th. Jóhannesson fyrrverandi forseti sendu samúðarkveðjur og þá minntist Karl Gústav Svíakonungur Haraldar með hlýju. „Guðsonur minn, Hákon konungur, sem ég hef þekkt lengi er vel hæfur og mjög góður maður. Noregur hefur misst góðan mann,“ sagði Karl Gústaf í samtali við sænsku sjónvarspsstöðina TV4. Áþreifanlegt þakklæti og hlýja Valgeir Magnússon var á Hallartorginu í Ósló í kvöld þar sem tugþúsundir hafa safnast saman í dag til að kveðja. „Ég hef aldrei komið í svona mikið fjölmenni þar sem er svona mikil þögn. Fólk er þakklátt. Fólk er að kveðja. Það eru blendnar tilfinningar fyrir því hvað tekur við því hann hefur verið svo mikill fasti í lífi fólks,“ sagði hann. Norðmenn minnist Haraldar með hlýju. „Þeir minnast hvað hann var hógvær, hvernig hann talaði fyrir jafnrétti og mótaði gildi þjóðarinnar. Og hvernig hann var fyrirmynd sem gekk fremst í flokki í því að lifa eftir þessum gildum,“ sagði Valgeir.
Noregur Haraldur V Noregskonungur Hákon VIII Noregskonungur Kóngafólk Íslendingar erlendis Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Nóg sé komið af Trump Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira