„Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ Áróra L Davíðsdóttir skrifar 30. ágúst 2026 00:57 Magnea Gná Jóhannsdóttir, varaborgarfulltrúi Framsóknarflokksins, og Lilja Alfreðsdóttir, formaður Framsóknarflokksins, eru í miklu stuði í kosningarpartíi nei-liða í Kolaportinu. SÝN Framsóknarkonurnar Lilja Alfreðsdóttir og Magnea Gná Jóhannsdóttir sammælast um það að kosningabaráttan hafi farið vel fram og allt bendi til þess að ungt fólk hafi sagt nei í dag.
Bjarki Sigurðsson fréttamaður er staddur í kosningarpartíi nei-liða í Kolaportinu og ræddi við þær Lilju og Magneu Gná. „Þetta er æsispennandi, það gefur auga leið. Það er alveg augljóst að við verðum ekki komin með niðurstöður alveg strax þannig ég segi bara: Nóttin er ung. Fæst orð, minnst ábyrgð,“ sagði Lilja Alfreðsdóttir, formaður Framsóknarflokksins. Hún sé afar stolt af sínu fólki sem hafi háð heiðarlega kosningabaráttu. Klippa: „Við bara spyrjum að leikslokum“ „Ég er bara rosalega stolt af mínu fólki. Það hefur háð heiðarlega og góða baráttu og við bara spyrjum að leikslokum.“ Aðalatriði sé að unnið sé málefnalega úr niðurstöðum næturinnar. „Það kemur morgundagur eftir þennan dag og við þurfum að vinna úr öllu, málefnalega, faglega og alltaf hafa hagsmuni Íslands að leiðarljósi,“ sagði formaðurinn. Er Framsóknarflokkurinn tilbúinn að vinna með hvaða niðurstöðu sem kemur? „Það er alveg ljóst að það þarf að vinna með niðurstöðuna hvort sem hún verður já eða nei. Ef nei-ið sigrar er mjög mikilvægt að bera virðingu fyrir viðhorfum þeirra sem kusu já. Það er augljóst að þjóðin er klofin í tvær tiltölulega jafn stórar fylkingar. Hún er líka klofin í landsbyggð og höfuðborgarsvæðið,“ sagði Lilja Alfreðsdóttir. Kannanir bendi til þess að ungt fólk sé ekki hrifið af ESB Magnea Gná Jóhannsdóttir, varaborgarfulltrúi Framsóknarflokksins, er sammála Lilju um að kosningabaráttan hafi farið vel. „Við höfum náð að virkja ungt fólk alls staðar á landinu með alls konar pólitískar skoðanir. Allt frá vinstri til hægri og á miðjunni. Það hefur gengið rosa vel. Magnea og Lilja segja báðar að ljóst sé að unga fólkið hafi sagt nei í dag. „Við sjáum það í könnunum að unga fólkið vill ekki ganga í Evrópusambandið. Sextíu prósent, samkvæmt nýjustu könnunum, vilja ekki ganga í Evrópusambandið. Þannig það er alveg skýrt að unga fólkið segir nei,“ sagði Magnea. „Hugsið ykkur það, þau byrja í svona 35 prósentum. Síðustu kannanir benda til að unga fólkið sé ekki hrifið af þessu og kaus nei,“ sagði Lilja.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Framsóknarflokkurinn Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira