Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið Áróra L Davíðsdóttir skrifar 30. ágúst 2026 01:53 Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra brást við fyrstu tölum úr öllum landshlutum á RÚV fyrr í kvöld. Vísir/Vilhelm Verði já-ið ofan á í kvöld er margra ára vegferð í farvatninu að sögn Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra. Kjörsókn endurspegli áhuga fólks á málinu en erfitt sé þegar mjótt er á munum. „
Þetta er ótrúlega jafnt og ég treysti mér ekki til þess að segja til um hvernig þetta fer og ég held að fáir geri það,“ sagði Kristrún en hún brást við fyrstu tölum úr öllum kjördæmum á kosningavöku Ríkisútvarpsins. Hún sé ótrúlega ánægð með kjörsókn dagsins sem og utankjörfundar. „Það sýnir að fólk hefur áhuga á þessu máli. Það kann að meta að fá að segja sína skoðun á því,“ sagði Kristrún. Þegar þessi frétt er skrifuð er já-ið með rúmt tveggja prósenta forskot á landinu öllu. Aðspurð um viðbrögð við hugsanlegri niðurstöðu með tæpum meirihluta í jafn umdeildu máli og áframhaldandi aðildarviðræðum við Evrópusambandið svarar Kristrún: „Sama hvort þetta verður nei eða já er alltaf erfitt þegar munar svona litlu. Ég ætla alveg að vera hreinskilin með það. Það breytir því ekki að við þurfum að vanda okkur hvernig svo sem fer.“ Landsmenn séu ánægðir með EES-samninginn „Ef þetta verður nei þá hef ég heyrt á ferðum mínum um landið og á höfuðborgarsvæðinu að fólk er ofboðslega ánægt með EES-samninginn og það fyrirkomulag sem við höfum við Evrópusambandið eins og sakir standa.“ Umræðan sýni að standa þurfi enn betur að því að verja EES-samninginn og hún vonist til að þingið komi saman í því. „Ef þetta verður já, sérstaklega ef þessi skipting verður eins og hún er að teiknast upp með landsbyggðina og höfuðborgarsvæðið, þurfum við að vanda okkur sérstaklega við að taka til greina þessar áhyggjur sem eru að birtast í landsbyggðarkjördæmunum. Þetta verður bara verkefni á hvorn veginn sem er horft.“ Málið hafi verið umdeilt þvert á flokka og heilmikil vegferð sé í farvatninu, sama hvernig fari. „Ef þetta verður já verður þetta margra ára vegferð. Það verður fleiri en ein ríkisstjórn með þetta í fanginu. Ef þetta verður nei verður það líka vegferð að vinna með okkar samstarf við Evrópu, við Bandaríkin, Norðurlönd og önnur lönd,“ sagði Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Samfylkingin Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira