Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Samúel Karl Ólason skrifar 31. ágúst 2026 10:36 Leitað í rústunum í Gyirong í Tíbet. Landamærabærinn er svo gott sem horfin eftir hamfarirnar í síðustu viku. AP/Xinhua, mynd tekin af björgunarsveitarmanni Yfirvöld í Kína hafa staðfest örfá dauðsföll í Tíbet vegna flóðbylgjunnar og aurskriðanna í síðustu viku. Hundraða er enn saknað en erfitt er að komast að bænum sem varð hvað verst úti á svæðinu.
Hamfarirnar áttu sér stað þann 26. ágúst en enn sem komið er hafa yfirvöld í Kína einungis staðfest sextán dauðsföll, samkvæmt ríkismiðlinum CGTN. Þá er 546 saknað. Í Nepal er vitað til þess að tæplega þúsund eru látnir en rúmlega fjögur þúsund manns er saknað þar. Sjá einnig: Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Í Tíbet sneru hamfarirnar að mestu að bænum Gyirong, sem lá á landamærum Nepal og Tíbet. Sá bær er svo gott sem horfinn, ef marka má fréttaklippur frá vettvangi og myndefni frá því þegar flóðbylgjan skall á bænum. Hér má svo sjá fyrir og eftir loftmyndir af Gyirong. Flóðbylgjan kom niður ána hægra megin á myndinni. New imagery from @vantortech confirms that the China-Nepal Rasuwagadhi border crossing has been completely destroyed, with the glacial flood completely scouring the valley floor. At least 359 people are dead and nearly 1,000 missing, according to local authorities. pic.twitter.com/DiBiUzJGtO— OSINTtechnical (@Osinttechnical) August 27, 2026 Björgunarsveitir hafa ekki náð almennilega til bæjarins með vinnutæki þar sem enn er verið að gera nýjan veg þangað. Samkvæmt CGTN koma rúmlega tvö þúsund manns, þar á meðal hermenn, að björgunarstörfunum í Tíbet. Unnið er að því að gera nýjan veg á svæðið en fótgangandi björgunaraðilar hafa leitað að minnsta kosti tvisvar sinnum í rústunum af Gyirong. Hér að neðan má sjá myndefni af þeirri vinnu og í lokin er drónamyndband sem sýnir leifarnar af Gyirong. Vinnan þykir mjög erfið, þar sem mikið vatn flæðir niður dalinn þar sem verið er að gera veginn. Lengi var óttast að nýtt stöðuvatn sem myndaðist eftir flóðið gæti leitt til frekari flóða en áin þykir komin í eðlilegt horf. Hættan er þó ekki alfarið liðin hjá og hefur vatn safnast saman á fleiri stöðum, samkvæmt frétt CGTN. Talið er að hamfarirnar hafi orðið eftir að jökulhlaup átti sér stað ofarlega í Himalæjafjöllum. Í fréttinni hér að neðan má sjá útskýringarmyndband sem sýnir hvernig talið er að flóðbylgjan hafi farið af stað.
Tíbet Kína Nepal Tengdar fréttir Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Tugir skólabygginga voru eyðilagðar og skoluðust burt þegar skyndiflóð og skriður ruddust niður fjalladali í Nepal og Tíbet þann 26. ágúst en þúsunda er enn þá saknað og tala látinna fer hækkandi. Skólastjóri í Nepal rýmdi skólann og skipaði um níu hundruð börnum að færa sig á hærra svæði örskömmu áður en flóðið skall á skólabyggingunni. 30. ágúst 2026 22:09 Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Að minnsta kosti 359 eru dánir og rúmlega níu hundruð er saknað eftir skyndiflóð og skriður í Nepal í gær. Svipað ástand er í Tíbet þar sem hundraða er enn saknað. Að minnsta kosti sjö hundruð erlendir ferðamenn eru meðal þeirra sem er saknað. 27. ágúst 2026 14:40 Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Yfir 1.500 er saknað eftir að jökulhrun olli skyndiflóði á landamærum Nepal og Tíbet. Svæðið er vinsælt meðal göngufólks og pílagríma og meirihluti þeirra sem saknað er eru ferðamenn. 27. ágúst 2026 07:23 Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Hundraða er saknað eftir að stærðarinnar skyndiflóð og skriður sópuðu heilu þorpunum á brott og ollu miklum skemmdum í Nepal og Tíbet í morgun. Flóðin ollu einnig miklum skemmdum á innviðum og orkuverum en yfirvöld í Nepal hafa beðið Indverja og Kínverja um aðstoð vegna flóðanna. 26. ágúst 2026 10:55 Mest lesið Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Innlent Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Innlent Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Innlent Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Innlent Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Kveiktu bál á bílastæði Innlent Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Erlent Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Erlent Íranir svara fyrir sig og Trump ýjar að árásum á Kharg-eyju Erlent Fleiri fréttir „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Íranir svara fyrir sig og Trump ýjar að árásum á Kharg-eyju Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september „Framkvæmdastjórnin virðir vilja íslensku þjóðarinnar“ Árásarmaðurinn enn ófundinn Skipulögð leit eftir skotárás á hátíð „Nú er komið að mér“ Ávarpar norsku þjóðina í fyrsta skipti sem konungur Milljónir í sekt fyrir að veðja á ræður forsetans Minnst þrjátíu og sjö látin eftir árás Rússa Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Sjá meira
Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Tugir skólabygginga voru eyðilagðar og skoluðust burt þegar skyndiflóð og skriður ruddust niður fjalladali í Nepal og Tíbet þann 26. ágúst en þúsunda er enn þá saknað og tala látinna fer hækkandi. Skólastjóri í Nepal rýmdi skólann og skipaði um níu hundruð börnum að færa sig á hærra svæði örskömmu áður en flóðið skall á skólabyggingunni. 30. ágúst 2026 22:09
Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Að minnsta kosti 359 eru dánir og rúmlega níu hundruð er saknað eftir skyndiflóð og skriður í Nepal í gær. Svipað ástand er í Tíbet þar sem hundraða er enn saknað. Að minnsta kosti sjö hundruð erlendir ferðamenn eru meðal þeirra sem er saknað. 27. ágúst 2026 14:40
Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Yfir 1.500 er saknað eftir að jökulhrun olli skyndiflóði á landamærum Nepal og Tíbet. Svæðið er vinsælt meðal göngufólks og pílagríma og meirihluti þeirra sem saknað er eru ferðamenn. 27. ágúst 2026 07:23
Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Hundraða er saknað eftir að stærðarinnar skyndiflóð og skriður sópuðu heilu þorpunum á brott og ollu miklum skemmdum í Nepal og Tíbet í morgun. Flóðin ollu einnig miklum skemmdum á innviðum og orkuverum en yfirvöld í Nepal hafa beðið Indverja og Kínverja um aðstoð vegna flóðanna. 26. ágúst 2026 10:55