Arion hækkar vexti á ný Agnar Már Másson skrifar 31. ágúst 2026 17:28 Benedikt Gíslason bankastjóri Arion banka. Aðsend Arion banki segist munu hækka vexti sína á fimmtudag. Hækkanirnar eru að mestu í takt við 0,25 prósenta stýrivaxtahækkun Seðlabankans en verðtryggðir fastir íbúðalánavextir hækka um 0,30 prósentustig.
Hækkunin kemur í framhaldi af því að peningastefnunefnd Seðlabankans tilkynnti 19. ágúst að stýrivextir hækkuðu um 0,25 prósentustig, úr 7,75 prósentum í 8,0 prósent. Hvað íbúðalán varðar greinir Arion banki frá því í tilkynningu að óverðtryggðir breytilegir íbúðalánavextir hækki um 0,25 prósentustig og verði því 9,69 prósent. Verðtryggðir fastir íbúðalánavextir hækka ögn meira, um 0,30 prósentustig, og verða því 4,94 prósent en það á aðeins við um ný lán. Þá segir að óverðtryggðir breytilegir kjörvextir einstaklinga og fyrirtækja hækki um 0,25 prósentustig og verði 10,85 prósent. Í tilkynningunni segir að kjörvextir bílalána hækki um 0,25 prósentustig og verði 11,25 prósent. Yfirdráttarvextir hækki um 0,25 prósentustig og verði 15,75 prósent. Greiðsludreifing og veltuvextir kreditkorta hækki um 0,25 prósentustig og verði 15,75 prósent. Aðrir óverðtryggðir breytilegir vextir útlána hækka um 0,25 prósentustig, að sögn bankans. Aftur á móti haldast innlánsvextir veltureikninga óbreyttir en vextir annarra óverðtryggðra reikninga hækka um allt að 0,25 prósentustig. Breytingar á vöxtum lána sem falla undir lög um neytendalán eða lög um fasteignalán til neytenda taka gildi í samræmi við skilmála lánanna og tilkynningar um vaxtabreytingar. Það sama gildir um breytingar á vöxtum innlána sem falla undir lög um greiðsluþjónustu, skrifar bankinn. Þá er tekið fram að vaxtabreytingar útlána Arion banka taki mið af fjármögnunarkostnaði bankans á hverjum tíma en einnig af öðrum þáttum, m.a. útlánaáhættu. Fjármögnunarkostnaður bankans fylgi að hluta til stýrivöxtum Seðlabankans en einnig hafi aðrar fjármögnunarleiðir umtalsverð áhrif, svo sem innlán viðskiptavina, markaðsfjármögnun og eiginfjárgerningar. Hækkun útlánavaxta komi fyrst og fremst til vegna hækkunar á fjármögnunarkostnaði bankans. Breytingarnar taka gildi á fimmtudag, 3. september.
Lánamál Arion banki Kjaramál Seðlabankinn Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira