Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 3. september 2026 16:22 Helga Þórisdóttir forstjóri persónuverndar segir stofnunina hafa fengið ábendingar eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna um síðustu helgi sem gætu orðið til þess að úthringingar verði skoðaðar. Vísir/Mynd úr safni Ábendingar og kvartanir hafa borist Persónuvernd vegna nýliðinnar þjóðaratkvæðagreiðslu. Tekin verður ákvörðun um hvert framhaldið verður á næstu dögum. Ábendingarnar varða símhringingar, sms og tölvupósta til einstaklinga.
Helga Þórisdóttir, forstjóri Persónuverndar, segir stofnunina ætla að leyfa fleiri ábendingum að berast áður en ákveðið verður hvort og þá hvernig málin verða tekin til frekari skoðunar. „Nokkrum dögum fyrir kosningarnar fóru okkur að berast ábendingar um óumbeðin fjarskipti og við fundum okkur knúin til þess að setja ábendingu um það á vefsíðuna okkar,“ segir Helga. Helga segir Persónuvernd jafnframt hafa unnið með öðrum aðilum innan stjórnkerfisins að því að upplýsa almenning um hvað væri heimilt og hvað ekki. „Svo koma kosningarnar og í framhaldi af því erum við að fá fleiri ábendingar og einhverjar kvartanir eru að skila sér til okkar.“ Næstum allar ábendingar um Áfram Ísland Helga óskaði eftir leiðréttingu á fréttinni sem birtist hér í gær þar sem haft var eftir henni að kvartanir fyrir og eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna vörðuðu fleiri en einn aðila. Helga segir í samtali við fréttastofu að hún hafi átt við þau sem hafa sent Persónuvernd ábendingar og kvartanir, Það sé hins vegar nánast bara einn aðili sem ábendingar og kvartanir snúi að eða Áfram Ísland- hreyfingunni sem barðist fyrir neii í þjóðaratkvæðagreiðslunni um liðna helgi. Ein ábending hafi snúið að Já til að sjá. „Það er næstum aðeins gagnvart Áfram Ísland- hreyfingunni, segir Helga.“ Persónuvernd hefur ekki gefið upp hvaða einstaklinga, samtök eða aðila ábendingarnar varða. Símtöl, SMS og tölvupóstar án samþykkis Helga segir ábendingarnar fyrst og fremst lúta að óumbeðnum fjarskiptum. „Þetta er spurning um það hvort fólk sé að fá símtöl, SMS og tölvupósta án þess að hafa óskað eftir því, án þess að hafa samþykkt það og slíkt.“ Persónuvernd birti á vef sínum 27. ágúst ábendingu vegna vinnslu persónuupplýsinga í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Frétt af vefsíðu Persónuverndar. Vísir Helga segir meðal annars mikilvægt að fólki sé ljóst hver standi að baki slíkum samskiptum og að einstaklingar eigi kost á að andmæla þeim. „Það þarf að vera upplýst hvaðan þessi símtöl eru að koma og varðveittur kostur á andmælum.“ Ákvörðun á næstu dögum Persónuvernd hyggst nú meta umfang þeirra ábendinga og kvartana sem berast áður en ákveðið verður hvort tilefni sé til frekari aðgerða. „Ég hugsa að það verði bara tekin ákvörðun um það hratt í næstu viku.“ Helga segir að þeir sem vilji koma ábendingum á framfæri við Persónuvernd geti sent þær á netfangið postur@personuvernd.is. Fréttin hefur verið uppfærð
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Persónuvernd Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira