Opnum Skálafell Valdimar Breiðfjörð Birgisson skrifar 9. september 2026 07:01 Það er barátta í gangi við að opna á ný skíðasvæðið í Skálafelli þrátt fyrir samkomulag sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um þá uppbyggingu. Reynslan af Bláfjöllum undanfarin ár hefur sannað að stórbætt aðstaða og nýjar lyftur skila aukinni aðsókn. Það mælir allt með því að byggja einnig upp skíðasvæðið í Skálafelli. Þegar vindátt er óhagstæð í Bláfjöllum er hún oft hagstæð í Skálafelli. Skálafell er sólríkara. Skíðasvæðið í Skálafelli er fjölbreytt og býður upp á skemmtilegar brekkur og gil. Í Skálafelli er lögleg keppnisbraut í stórsvigi, sú eina á höfuðborgarsvæðinu. Skíðasvæðið í Bláfjöllum er líka sprungið þegar aðstæður eru góðar og þar myndast hættulegar aðstæður bæði í helstu brekkunni þar sem tvær öflugar stólalyftur skila of miklum fjölda í þrönga brekku. Það myndast líka öngþveiti á bílastæðum. Þetta þekkir fólk sem fer í Bláfjöll á góðviðrisdögum. Tvö skíðasvæði dreifa umferð og álaginu betur. Á fundi samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins nýverið kallaði fulltrúi Seltjarnarness uppbyggingu í útivistarparadísinni í Skálafelli „gæluverkefni“ og hélt því fram að nóg væri að reka eitt skíðasvæði á höfuðborgarsvæðinu. Að kalla uppbyggingu á skíðasvæði til næstu 40–50 ára „gæluverkefni“ í ört vaxandi samfélagi ber vott um skammsýni og furðulegan skilning á íþróttainnviðum og lýðheilsu. Ef eitt skíðasvæði er nóg fyrir 250 þúsund manna samfélag, dugar okkur þá líka ein sundlaug, einn fótboltavöllur eða eitt íþróttahús, einn golfvöllur? Á það ekki við um öll íþróttamannvirki? Kannski að bæjarstjórn Seltjarnarness ætli að leggja til að golfvöllum verði lokað í sparnaðarskyni. Það grefur undan samstarfi sveitarfélaga ef sveitarfélög ætla að hlaupast í burtu frá samkomulagi þegar kemur að framkvæmdum. Stöndum við samkomulagið og gefin loforð og nýtum þau frábæru tækifæri sem útivistarparadísin í Skálafelli hefur upp á að bjóða fyrir lýðheilsu, fjölskyldur og skíðafólk! Valdimar Breiðfjörð Birgisson Höfundur er fulltrúi Mosfellsbæjar í samstarfsnefnd skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mosfellsbær Skíðasvæði Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Draumsýn menntamála Álfhildur Leifsdóttir ,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Sjá meira
Það er barátta í gangi við að opna á ný skíðasvæðið í Skálafelli þrátt fyrir samkomulag sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um þá uppbyggingu. Reynslan af Bláfjöllum undanfarin ár hefur sannað að stórbætt aðstaða og nýjar lyftur skila aukinni aðsókn. Það mælir allt með því að byggja einnig upp skíðasvæðið í Skálafelli. Þegar vindátt er óhagstæð í Bláfjöllum er hún oft hagstæð í Skálafelli. Skálafell er sólríkara. Skíðasvæðið í Skálafelli er fjölbreytt og býður upp á skemmtilegar brekkur og gil. Í Skálafelli er lögleg keppnisbraut í stórsvigi, sú eina á höfuðborgarsvæðinu. Skíðasvæðið í Bláfjöllum er líka sprungið þegar aðstæður eru góðar og þar myndast hættulegar aðstæður bæði í helstu brekkunni þar sem tvær öflugar stólalyftur skila of miklum fjölda í þrönga brekku. Það myndast líka öngþveiti á bílastæðum. Þetta þekkir fólk sem fer í Bláfjöll á góðviðrisdögum. Tvö skíðasvæði dreifa umferð og álaginu betur. Á fundi samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins nýverið kallaði fulltrúi Seltjarnarness uppbyggingu í útivistarparadísinni í Skálafelli „gæluverkefni“ og hélt því fram að nóg væri að reka eitt skíðasvæði á höfuðborgarsvæðinu. Að kalla uppbyggingu á skíðasvæði til næstu 40–50 ára „gæluverkefni“ í ört vaxandi samfélagi ber vott um skammsýni og furðulegan skilning á íþróttainnviðum og lýðheilsu. Ef eitt skíðasvæði er nóg fyrir 250 þúsund manna samfélag, dugar okkur þá líka ein sundlaug, einn fótboltavöllur eða eitt íþróttahús, einn golfvöllur? Á það ekki við um öll íþróttamannvirki? Kannski að bæjarstjórn Seltjarnarness ætli að leggja til að golfvöllum verði lokað í sparnaðarskyni. Það grefur undan samstarfi sveitarfélaga ef sveitarfélög ætla að hlaupast í burtu frá samkomulagi þegar kemur að framkvæmdum. Stöndum við samkomulagið og gefin loforð og nýtum þau frábæru tækifæri sem útivistarparadísin í Skálafelli hefur upp á að bjóða fyrir lýðheilsu, fjölskyldur og skíðafólk! Valdimar Breiðfjörð Birgisson Höfundur er fulltrúi Mosfellsbæjar í samstarfsnefnd skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins.
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar