Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Lovísa Arnardóttir skrifar 10. september 2026 09:00 Síminn hefur ekki stoppað hjá Guðfinni síðan hann tók við síma Sólarmegin. Hann segist ætla að reyna að aðstoða alla eftir bestu getu. Aðsend og Vísir/EPA Guðfinnur Friðriksson segir Samúel Jón Samúelsson, eiganda ferðaþjónustufyrirtækisins Sólarmegin, hafa svikið hann eins og aðra sem hann seldi gistingu á Spáni á fölskum forsendum. Guðfinnur gerði samning við Samúel í ágúst um að kaupa innviði félagsins og halda rekstrinum áfram, án þess að taka yfir fyrri skuldbindingar hans. Þegar hann tók við félaginu hafi komið í ljós að Samúel Jón hafði ekki staðið við neinar þeirra.
Fram kom á RÚV í gær að einhverjir hafi ætlað að leita til lögreglu vegna málsins. Haft var eftir Samúel Jóni í frétt RÚV að fyrirtæki hans væri komið í þrot og að hann ætlaði sér að endurgreiða fólki. Fréttastofa náði tali á Samúel í morgun sem sagðist ekki ætla að tjá sig um málið. Eftir að hann lét af hendi fyrstu greiðslu og fékk afhent símanúmer og tölvupóst komst hann svo að því að Samúel Jón hafði ekki staðið við neinar skuldbindingar sínar. „Strax í kjölfarið kom í ljós skelfileg staðreynd: Fjölmargir hópar sem höfðu greitt Samúel fyrir gistingu mættu til landsins og lentu á götunni. Íbúðirnar sem fólkið hafði borgað fyrir reyndust óborgaðar af hálfu Samúels og fjármunir viðskiptavina fóru á brott,“ segir Guðfinnur í færslu sem hann deildi í hópinn Íslendingar á Spáni í gærkvöldi. Allir skilmálar brotnir Hann segir Samúel Jón þannig hafa brotið nánast alla skilmála samningsins og neitar að gangast við því. „… en ég vinn nú hörðum höndum að því að rifta kaupsamningnum að fullu á grundvelli þessara augljósu svika. Ég vil taka það algjörlega skýrt fram að ég tengist þessum svikum ekki neitt, heldur er ég sjálfur fórnarlamb í þessum viðskiptum,“ segir Guðfinnur í færslu sinni. Í samtali við Vísi segir Guðfinnur að hann hafi leitað ráða hjá lögmanni og telur Samúel Jón líklega hafa svikið tugi sem eru komin eða á leið til Spánar. Flest þeirra eru eldri borgarar. „Síminn hjá mér hefur nánast ekki stoppað síðan ég tók við honum í byrjun september,“ segir Guðfinnur. Fjöldi Íslendinga leitar til Spánar í vetrarsetu. Vísir/EPA Pressaði á fólk að borga Hann segir Samúel Jón hafa pressað á nærri alla sem hafa haft samband að ljúka greiðslum en ekki hafi verið greitt fyrir neinar íbúðir sem hann hafi ætlað að leigja fyrir fólk. Dæmi séu um að hann hafi leigt út sömu íbúðina í einum íbúðakjarna til allt að tíu manns. „Ég hef staðið í ströngu við að slökkva elda, aðstoða fólk á ögurstundu og reyna eftir fremsta megni að redda fólki gistingu á hótelum og íbúðum – verkefni og ábyrgð sem tilheyrir mér engan veginn, en ég gat einfaldlega ekki horft upp á fólk lenda á götunni vegna gjörða annars manns,“ segir hann í færslunni. Í samtali við Vísi ítrekar Guðfinnur að hann ætli að gera allt sem í sínu valdi stendur til að aðstoða viðskiptavini Sólarmegin og vinna með því fólki sem hefur hlotið skaða af viðskiptum við Samúel Jón. „Þetta er hörmulegt,“ segir Guðfinnur í samtali við fréttastofu. Hann tók við síma Sólarmegin, samkvæmt samkomulagi þann 1. september, og segir að strax um kvöldið hafi síminn byrjað að hringja. Hann hafi farið á flugvöllinn á Alicante til að taka við fjórum hópum og enginn þeirra hafi endað á réttum stað. Síminn hafi ekki stöðvað frá þessum tíma og hringi á öllum tímum sólarhrings. Áttræðar konar þurftu að greiða reikning Samúels Hann biðlar til fólks sem hefur átt í viðskiptum við Samúel Jón að hafa samband en sömuleiðis að sýna sér þolinmæði, hann sé fórnarlamb þessara svika eins og þau. „Ég er að reyna að aðstoða þetta fólk við að komast í húsaskjól. Ég bið það að senda mér skilaboð um hvernig mál þess standa gagnvart því,“ segir hann. „Samfélagið hérna er á hliðinni,“ segir hann og að á þessum tíma árs fjölgi yfirleitt Íslendingum á svæðinu gífurlega, sérstaklega frá eldri borgunum sem vilji verja vetrinum í hlýrra loftslagi. Hann segir að í gær hafi hann til dæmis aðstoðað tvær áttræðar konur sem keyptu gistingu af Samúel Jóni. „Hann hafði borgar tvær nætur á hótelinu, en þegar þær tjékkuðu sig út í gær þurftu þær að borga reikninginn hans hótelinu,“ segir hann og að fjöldi fólks fari á milli gististaða vegna málsins og sé að borga tvöfalda leigu. Dáið félag og draumurinn með „Fólk lifir í ferðatöskum,“ segir hann og að það séu flestir sammála um að það þurfi að handtaka Samúel Jón. „Sólarmegin, það er hægt að auglýsa það sem dáið félag,“ segir Guðfinnur. Hann segir þetta leiðindamál og að hann hafi dreymt um að vinna við þetta. Hann harmi þessi svik og hvernig Samúel Jón hefur komið fram. Þrátt fyrir þetta áfall ætli hann sér að reyna að rísa upp úr þessu og hefja rekstur með öðrum hætti, það gæti þó tekið tíma. Veistu meira um málið? Þú getur sent okkur fréttaskot hér.
Spánn Lögreglumál Íslendingar erlendis Erlend sakamál Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Innlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku Innlent „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Innlent Hafnað með afgerandi hætti Erlent „Tíminn er á þrotum“ Erlent Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Innlent Fleiri fréttir „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Bein útsending: Kynnir fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Sjá meira