Vara við afleiðingunum Eiður Þór Árnason skrifar 11. september 2026 18:20 Óskar Einarsson, formaður Flugvirkjafélag Íslands, og Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair. Hvorki hefur gengið né rekið í viðræðum samningsaðila síðustu mánuði. FÍ/Vísir Stjórnendur Icelandair harma að Flugvirkjafélag Íslands hafi sett af stað atkvæðagreiðslu um ótímabundið allsherjarverkfall og vara við afleiðingunum ef slíkar aðgerðir verða að veruleika. Fulltrúi flugvirkja segir þá hafa dregist aftur úr almennri launaþróun á meðan Icelandair segir kröfurnar óraunhæfar. Flugfélagið geti ekki teygt sig lengra.
Langt er milli samningsaðila og slitnaði upp úr viðræðum þann 22. júní, að sögn Óskars Einarssonar, formanns Flugvirkjafélags Íslands. Atkvæðagreiðsla um allsherjarverkfall hófst í hádeginu í dag og stendur fram á hádegi á mánudag. Icelandair hefur sent sérstaka yfirlýsingu frá sér vegna þessa. Óskar segir þá staðhæfingu að kröfur flugvirkja séu „langt umfram það sem gengur og gerist í samfélaginu“ slitna úr samhengi. Hann hafði ekki áður séð umrædda yfirlýsingu Icelandair og vildi lítið tjá sig um hana í samtali við fréttamann. Það sama í boði fyrir þá og almenna vinnumarkaðinn Icelandair segir að það geti ekki gengið lengra en í síðasta tilboði. Þið eruð væntanlega ósammála þeirri afstöðu? „Þeir verða að svara því. Þeir hafa bara boðið okkur það sem er almennt á vinnumarkaði en þau gleyma að telja það fram að við erum búin að vera með fastan samning síðan 2020. Það er ástæðan fyrir því að við erum á þessum stað.“ „Við höfum bara orðið á eftir. Það er það sem er í gangi og það getur vel verið að fyrirtækið upplifi það að þeir hafi boðið okkur eitthvað sambærilegt því sem er verið að bjóða almennum vinnumarkaði. Vinnumarkaðurinn er bara búinn að fá umfram okkur á tímanum og þess vegna erum við á þessum stað. Meira hef ég ekki um þetta að segja. Ef það er eitthvað sem þú þarft að spyrja út úr þessari yfirlýsingu þá skaltu bara snúa þér til þeirra sem senda hana.“ Kæmi á slæmum tíma Icelandair bendir á að september sé háannatími hjá félaginu og verkfall af þessari stærðargráðu gæti haft miklar afleiðingar. „Á þessum tíma eru flug í áætlunarflugi um 110 að meðaltali á degi hverjum og fjöldi farþega um 15 þúsund á dag. Þá myndu slíkar aðgerðir leggjast ofan á þær áskoranir sem Icelandair stendur frammi fyrir. Aðstæður hafa verið krefjandi í rekstrarumhverfinu um langa hríð, meðal annars vegna mjög hás eldsneytisverðs,“ segir í tilkynningu. Þá varar flugfélagið við því að áhrif verkfalls myndu ná langt út fyrir starfsemi félagsins, hafa áhrif á þúsundir farþega og íslenska ferðaþjónustu og hagkerfið í heild. Kjarasamningar Félags íslenskra atvinnuflugmanna og Flugfreyjufélags Íslands við Icelandair eru sömuleiðis lausir og hafa verið það í um ár.
Icelandair Kjaramál Flug Kjaradeila Icelandair og flugvirkja 2026 Tengdar fréttir Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Atkvæðagreiðsla á meðal flugvirkja sem starfa hjá Icelandair um boðun verkfallsaðgerða er sögð fara fram í dag. Kjaraviðræður á milli Flugvirkjafélagsins og Icelandair hafa staðið yfir að undanförnu. 11. september 2026 11:54 Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira
Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Atkvæðagreiðsla á meðal flugvirkja sem starfa hjá Icelandair um boðun verkfallsaðgerða er sögð fara fram í dag. Kjaraviðræður á milli Flugvirkjafélagsins og Icelandair hafa staðið yfir að undanförnu. 11. september 2026 11:54