Viltu vita hvað virkar? Jón Pétur Zimsen skrifar 14. september 2026 07:00 Til eru íslenskir grunnskólar með stóran fjölbreyttan nemendahóp sem hafa bætt PISA-árangur sinn milli rannsókna. Árangur eins þeirra er slíkur að ef allir skólar næðu sömu niðurstöðum væri Ísland við topp OECD-ríkja. Hvað getum við lært? Hér eru tíu aðgerðir sem flestar eiga sterka stoð í rannsóknum: 1. Foreldrar lesi og tali mikið við börnin fyrstu árin 2-3, að gagnvirkur skjátími sé við frostmark. 2. Börn í leikskólum alist upp við ríkulegt og gott íslenskt málumhverfi. 3. Kennaranám verði algerlega endurskoðað með áherslu á grunnfærni, árangur og tímalengd. 4. Aðalnámskráin verði skýrari og byggi á þekkingu og grunnfærni. 5. Grunnur lestrarkennslu verði kerfisbundin hljóðaaðferð ásamt orðaforða, lesfimi og lesskilningi. 6. Framvinda lestrarnáms verði mæld reglulega í 1.–3. bekk og strax gripið inn í þegar barn dregst aftur úr. 7. Notum beina, skýra og kerfisbundna kennslu. Fáar kennslunálganir eiga jafn víðtækan rannsóknargrunn við uppbyggingu grunnþekkingar og grunnfærni sem ýtir undir sköpun og gangrýna hugsun. 8. Samræmd könnunarpróf verði í 4., 7. og 9. bekk og samræmt lokapróf í 10. bekk þar sem öll viðmið aðalnámskrár eru undir. 9. Endurskoðum algerlega notkun far- og spjaldtölva og færum hefðbundnar bækur aftur inn í skólana. 10. Eflum tengsl, aga, félagsfærni og jákvæðan skólabrag. Fáar þessara breytinga kalla á aukin útgjöld; flestar snúast um breytta forgangsröðun, stefnu og sýn. Skólinn sem ég nefndi í upphafi er meðal ódýrustu grunnskóla landsins á hvern nemanda. Við þurfum ekki alltaf meiri peninga til að bæta skólann. Við þurfum að gera meira af því sem við vitum að virkar. Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jón Pétur Zimsen PISA-könnun Skóla- og menntamál Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Draumsýn menntamála Álfhildur Leifsdóttir ,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Sjá meira
Til eru íslenskir grunnskólar með stóran fjölbreyttan nemendahóp sem hafa bætt PISA-árangur sinn milli rannsókna. Árangur eins þeirra er slíkur að ef allir skólar næðu sömu niðurstöðum væri Ísland við topp OECD-ríkja. Hvað getum við lært? Hér eru tíu aðgerðir sem flestar eiga sterka stoð í rannsóknum: 1. Foreldrar lesi og tali mikið við börnin fyrstu árin 2-3, að gagnvirkur skjátími sé við frostmark. 2. Börn í leikskólum alist upp við ríkulegt og gott íslenskt málumhverfi. 3. Kennaranám verði algerlega endurskoðað með áherslu á grunnfærni, árangur og tímalengd. 4. Aðalnámskráin verði skýrari og byggi á þekkingu og grunnfærni. 5. Grunnur lestrarkennslu verði kerfisbundin hljóðaaðferð ásamt orðaforða, lesfimi og lesskilningi. 6. Framvinda lestrarnáms verði mæld reglulega í 1.–3. bekk og strax gripið inn í þegar barn dregst aftur úr. 7. Notum beina, skýra og kerfisbundna kennslu. Fáar kennslunálganir eiga jafn víðtækan rannsóknargrunn við uppbyggingu grunnþekkingar og grunnfærni sem ýtir undir sköpun og gangrýna hugsun. 8. Samræmd könnunarpróf verði í 4., 7. og 9. bekk og samræmt lokapróf í 10. bekk þar sem öll viðmið aðalnámskrár eru undir. 9. Endurskoðum algerlega notkun far- og spjaldtölva og færum hefðbundnar bækur aftur inn í skólana. 10. Eflum tengsl, aga, félagsfærni og jákvæðan skólabrag. Fáar þessara breytinga kalla á aukin útgjöld; flestar snúast um breytta forgangsröðun, stefnu og sýn. Skólinn sem ég nefndi í upphafi er meðal ódýrustu grunnskóla landsins á hvern nemanda. Við þurfum ekki alltaf meiri peninga til að bæta skólann. Við þurfum að gera meira af því sem við vitum að virkar. Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar