Leita 129 manns eftir að ferju hvolfi við Indónesíu Lovísa Arnardóttir skrifar 14. september 2026 08:07 Björgunaraðgerðir eru erfiðar við ferjuna. Myndin er tekin að björgunaraðilum á vettvangi. Vísir/EPA Enn er 129 manns saknað eftir að ferju hvolfdi í Jövuhafi við Indónesíu í slæmu veðri í gær. Búið er að bjarga um 108 manns. Sex í það minnsta eru látin. Alls voru um 243 um borð í ferjunni sem var að fara frá Surabaya í Austur-Jövu til Banjarmasin í Suður-Kalimantan-héraði á Borneo-eyjunni.
Í frétt AP kemur fram að skipstjórinn hafi greint frá því að öldur hafi verið allt að þriggja metra háar áður en hann sendi út neyðarkall. Síðar hafi stjórnvöld fengið veður af því að bátnum hafi hvolft. Þar kemur jafnframt fram að báturinn hafi verið í um 148 kílómetra fjarlægð frá Banjarmasin. Í frétt Reuters segir að af þeim 243 sem voru um borð hafi 213 verið farþegar og 30 í áhöfn. Þá segir að í bátnum hafi einnig verið um 89 farartæki. Í frétt AP sem birt var í gær má sjá myndir sem teknar voru af björgunarsveitum af bátnum hvolfdum sem flaut á vatninu. Í frétt Reuters um sama mál kemur fram að stjórnvöld hafi sent á vettvang um sautján skip, fimm þyrlur og flugvél. Slasaður farþegi fluttur á spítala í Banjarmasin í Indónesíu. Vísir/EPA Hvass vindur og háar öldur hafa torveldað leitina að sögn Mohammad Syafii, yfirmanns almannavarnastofnunar Indónesíu, í frétt Reuters en þar kemur fram að almannavarnastofnunin hafi sent að minnsta kosti 622 starfsmenn, 17 skip, fimm þyrlur og flugvélar til að leita að þeim sem enn er saknað. Sum skipanna séu komin á vettvang en björgunarfólki hafi reynst erfitt að komast inn í skipið sem hvolfdi. „Við myndum einnig senda starfsfólk með sérþekkingu á neðansjávarbjörgun en aðstæður eins og þær eru nú leyfa okkur það ekki,“ sagði hann. „Á meðan við bíðum eftir að veðurskilyrði batni erum við að finna fleiri starfsmenn með sérþekkingu,“ sagði hann og bætti við að tala látinna væri enn sex. Þriðja ferjuslysið Samgönguráðherrann Dudy Purwagandhi sagði að ferjan sem valt hefði rúmt fyrir 500 farþega og því hefði hún ekki verið yfirfull. Indónesía reiðir sig á ferjur til samgangna milli 17.000 eyja landsins, en nýlega hafa orðið nokkur slys um borð í slíkum ferjum. Að minnsta kosti 211 manns var bjargað úr indónesískri ferju sem kviknaði í nærri Balí í síðasta mánuði. Einn fannst látinn og fjögurra annarra var enn saknað. Atvikið átti sér stað innan við tveimur vikum eftir að eldur kom upp í annarri indónesískri ferju, Mutiara Sentosa 2, undan meginlandseyjunni Jövu. Að minnsta kosti fimm létust í þeim eldsvoða. Þá er einnig stutt síðan eldur gereyðilagði farþegaferju á Filippseyjum. Að minnsta kosti 76 létust í þeim eldsvoða og enn er að minnsta kosti tíu manna saknað.
Indónesía Filippseyjar Hafið Tengdar fréttir Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Í það minnsta átta eru látin og 18 er saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur í gær. Alls voru 270 farþegar um borð í ferjunni sem hvolfdi við strendur eyjunnar þar sem Tyrkir hafa yfirráð. 31. ágúst 2026 07:43 Á þriðja tug enn saknað eftir að kviknaði í ferju Tuttugu og átta er enn saknað eftir að kviknaði í ferju undan ströndum Indónesíu í gær. Tala látinna er komin í fimm en um borð voru 232 farþegar og 39 manna áhöfn samkvæmt farþegalista ferjunnar. 3. ágúst 2026 11:03 Mest lesið Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Innlent „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Johnson rétt slapp við árás Rússa Erlent Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Innlent „Það er ekki Stóra-Bretland heldur litla England“ Erlent Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Innlent Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara Innlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent Fleiri fréttir Sádar í slæmri stöðu en Trump kennir Selenskí um Gefa kola- og gasorkuverum lausan tauminn Finnar taka þátt í kjarnorkuvernd Frakka Talinn hafa geymt lík foreldra sinna í frysti í þrjátíu ár „Það er ekki Stóra-Bretland heldur litla England“ Leita 129 manns eftir að ferju hvolfdi við Indónesíu Stjórnin líklega fallin en staðan afar þröng Johnson rétt slapp við árás Rússa Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Munurinn minnkar í nýrri spá Vinstri blokkin leiðir í útgönguspám „Það er mjög jafnt á milli blokkanna“ Óboðinn gestur gripinn við heimili Harris Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Þingkosningar í Svíþjóð: Stjórnin riðar til falls en að mynda nýja gæti reynst erfitt Minnst 44 slasast og ein í lífshættu eftir lestarslys í Frakklandi Systir Haraldar er látin Dönsk kona ákærð fyrir að verða nýfæddum börnum sínum að bana Stefna kanslaranum fyrir meiðyrði um Valkost fyrir Þýskaland Gerðu drónaárásir á verslunarmiðstöð Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Kanna hvort Kim eigi son Biður dómara um að hlífa Clancy við öðrum réttarhöldum Miklar hækkanir á olíumörkuðum í dag Sjá meira
Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Í það minnsta átta eru látin og 18 er saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur í gær. Alls voru 270 farþegar um borð í ferjunni sem hvolfdi við strendur eyjunnar þar sem Tyrkir hafa yfirráð. 31. ágúst 2026 07:43
Á þriðja tug enn saknað eftir að kviknaði í ferju Tuttugu og átta er enn saknað eftir að kviknaði í ferju undan ströndum Indónesíu í gær. Tala látinna er komin í fimm en um borð voru 232 farþegar og 39 manna áhöfn samkvæmt farþegalista ferjunnar. 3. ágúst 2026 11:03