Viðskipti innlent

Ráðinn fjár­mála­stjóri Há­skólans á Bif­röst

Atli Ísleifsson skrifar
Kristinn Leví Aðalbjörnsso
Kristinn Leví Aðalbjörnsso

Kristinn Leví Aðalbjörnsson hefur verið ráðinn fjármálastjóri Háskólans á Bifröst.

Í tilkynningu segir að hann taki einnig sæti í framkvæmdastjórn háskólans.

„Kristinn Leví hefur víðtæka reynslu af fjármálum og rekstri, svo sem fjárhagsstýringu, áætlanagerð, greiningum og kostnaðareftirliti. Hann starfaði áður sem fjármálastjóri S.Iceland ehf. og þar áður hjá Stólpa gámum við rekstrartengd verkefni.

Hann er frá Hnífsdal og byrjaði ungur að vinna. Sjávarútvegurinn var hans starfsvettvangur framan af starfsævinni, og starfaði hann meðal annars hjá Bakka hf. og sat um tíma í stjórn félagsins.

Kristinn er með BSc gráðu í viðskiptafræði og hefur auk þess sótt sér margþætta þekkingu, s.s. í tengslum við fjármál og afleiður. Hann hefur reynslu og þekkingu á þróun ferla og hvernig nýta má gögn og tækni til að styðja við betri ákvarðanatöku og rekstur,“ segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×