Spurðu hvað fyrirtæki ætluðu að gera og hafa þegar fengið svar Árni Sæberg skrifar 14. september 2026 10:21 Halla Gunnarsdóttir er formaður VR. Vísir/Vilhelm VR, LÍV og Fagfélögin hafa sent verðmótandi fyrirtækjum bréf og óskað svara um hvað þau ætli að leggja af mörkum svo að kjarasamningar geti haldið gildi sínu. Sláturfélag Suðurlands hefur þegar brugðist við og frestað fyrirhuguðum verðhækkunum fram í janúar.
Í tilkynningu á vef VR segir að þegar kjarasamningar voru undirritaðir hafi launafólk tekið mikla áhættu með því að fallast á lágar launahækkanir á verðbólgutímum. Á móti hafi fyrirtæki ætlað að halda aftur af verðhækkunum til að ná niður verðbólgu og vöxtum. Verð hafi þrátt fyrir þetta hækkað látlaust og vextir séu svimandi háir. Forsendur kjarasamninga séu brostnar og þeir gætu losnað 8. október næstkomandi. Óbreytt ástand sé ekki í boði VR, LÍV og Fagfélögin hafa því sent verðmótandi fyrirtækjum bréf og óskað svara um hvað þau ætli að leggja af mörkum svo að kjarasamningar geti haldið gildi sínu. „Óbreytt ástand er ekki valkostur.“ Hér fyrir neðan er listi yfir þau fyrirtæki sem fengu bréfið sent: Arion banki Bera Drangar Eimskipafélag Íslands Festi Garri Hagar HS Orka Innnes Íslandsbanki ÍSAM / Ó. Johnson & Kaaber Kaupfélag Skagfirðinga Kvika banki Landsbankinn Landsvirkjun Natan Orkuveitan RARIK Samskip Sláturfélag Suðurlands Veitur SS tekur á sig hundrað milljóna kostnað Fréttastofu barst í morgun fréttatilkynning frá Sláturfélagi Suðurlands í tilefni af þessari áskorun stéttarfélaganna. „Óstöðugleiki, sem leiðir til verðbólgu og hárra vaxta, er eitt helsta meinið í efnahagsmálum íslendinga. Síðustu kjarasamningar voru til langs tíma sem er mikilvægt upp á stöðugleika. Í þeim var uppsagnarákvæði í október 2026 ef verðbólga væri yfir umsömdum mörkum. Því miður hefur verðbólga verið yfir þessum mörkum undanfarið og spilar þar meðal annars inn í hækkanir vegna stríðsátaka á mörgum vörum sem fluttar eru til landsins. Eftir sem áður er mjög mikilvægt að samningsaðilar leiti leiða til að kjarasamningum verði ekki sagt upp.“ Í bréfi stéttarfélaganna, sem hafi borist fyrir nokkrum dögum, hafi þess verið óskað að félagið, sem stór aðili á markaði, legði sitt af mörkum til þess að ekki kæmi til uppsagnar kjarasamninga með því að draga til baka og/eða endurskoða fyrirhugaðar verðhækkanir sem SS hafði kynnt til að mæta miklum kostnaðarhækkunum á árinu. Frá áramótum hafi plastumbúðir hækkað um 16 til 30 prósent, flutningskostnaður aukist um 15 prósent, önnur rekstrarvara hækkað um 5 til 15 prósent og laun hækkað um 5,3 prósent. Áætluð hækkun til bænda sé 3 til 4 prósent. „Til að mæta hluta þessa kostnaðarauka ætlaði SS að hækka verð um 3 til 5 prósent á næstu dögum. SS hefur fjallað um þessa beiðni og telur rétt, sem ábyrgur aðili, að taka tillit til þessara óska vegna þess sem er í húfi. Verðhækkun allra vara í smásölu undir vörumerkjum SS, 1944 og Búrfell sem áttu að hækka um 3 prósent hefur verið frestað fram í janúar. Nokkrir vöruliðir í smásölu sem áttu að hækka um 5 prósent munu hækka um 3 prósent. Kostnaður SS við að fresta eða breyta nefndum verðbreytingum er áætlaður 90 til 110 milljónir króna. Með þessum framlagi vill félagið leggja lóð á vogarskál stöðugleika og vonar að kjarasamningar haldi.“
Verðlag Matvælaframleiðsla Stéttarfélög Kjaramál Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Sjá meira