Um helmingur lækna á Landspítala í fullu starfi Sigurður Helgi Pálmason skrifar 15. september 2026 07:02 Í svari heilbrigðisráðherra við fyrirspurn minni um starfshlutfall lækna hjá Landsítala og Sjúkrahúsinu á Akureyri kemur fram að einungis 271 af 568 læknum á Landspítala eru þar í fullu starfi, eða með starfshlutfall frá 91 til 100 prósent. Tuttugu læknar eru þar í 81 til 90 prósenta starfshlutfalli, fimmtíu læknar í 71 til 80 prósenta starfshlutfalli og tuttugu og þrír læknar eru í 61 til 70 prósenta starfi á Landspítalanum. Samandregið eru því 64 prósent lækna á Landspítalanum með starfshlutfall á bilinu 61 til 100 prósent. Þar með eru 36 prósent læknanna með sextíu prósenta starfshlutfall eða minna. Í svörum ráðherra kemur til að mynda fram að enginn þeirra tólf augnlækna sem þar starfa séu þar í meira en 60 prósenta starfshlutfalli. Þar af eru 79 læknar í tíu prósenta eða minna starfshlutfalli. Það þýðir að 14 prósent lækna á Landspítalanum eru þar í minna en 10 prósenta starfi. Samfella í starfi Landspítala Það geta auðvitað verið margs konar og réttmætar ástæður fyrir litlu starfshlutfalli lækna á Landspítala. Til að mynda eru starfa 143 þeirra einnig eftir samningi Sjúkratrygginga Íslands og Læknafélags Reykjavíkur, eða um fjórðungur þeirra lækna sem vinna á Landspítalanum. Þegar svör heilbrigðisráðherra eru skoðuð vekur það athygli að einungis 51 prósent lækna sem starfa á Landspítalanum eru þar í meira en 80 prósenta starfshlutfalli. Það hefur komið fram í opinberri umræðu að læknar sem einnig vinna utan Landspítala, sinni þar útköllum þegar á þarf að halda. En það hefur einnig komið fram í umræðunni að til að tryggja festu og samfellu í þróun starfsemi á Landspítala sem jafnframt er háskólasjúkrahús, þurfi að hafa hátt hlutfall lækna þar í fullu starfi. Svör heilbrigðisráðherra við fyrirspurn minni gætu því nýst til frekari umræðu um þessi mál. Höfundur er þingmaður Flokks fólksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sigurður Helgi Pálmason Mest lesið Tvær þjóðir í sama landi? Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer Skoðun Um helmingur lækna á Landspítala í fullu starfi Sigurður Helgi Pálmason Skoðun Hvað hefur presturinn að segja yfir gröfinni? Hilmar Kristinsson Skoðun Erlendi ferðamaðurinn - einn besti skattgreiðandi landsins? Þórir Garðarsson Skoðun Betri borg fyrir börn Bára Birgisdóttir Skoðun Hafrannsóknarstofnun á villigötum Gunnlaugur Stefánsson Skoðun Bókin er betri! Sigþrúður Gunnarsdóttir Skoðun Viltu vita hvað virkar? Jón Pétur Zimsen Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Umferð í Reykjavík og samgönguásar höfuðborgarsvæðisins Elías B Elíasson skrifar Skoðun Dánaraðstoð: Hvar liggja mörk sjálfræðis? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Ferðaþjónustan gerir Ísland skemmtilegra Ragnhildur Ágústsdóttir skrifar Skoðun Um helmingur lækna á Landspítala í fullu starfi Sigurður Helgi Pálmason skrifar Skoðun Hvað hefur presturinn að segja yfir gröfinni? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Erum við í hættu? Ólgan kringum gervigreind Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Það sem ég vildi að foreldrar mínir vissu… Aðalheiður Ásdís Boutaayacht skrifar Skoðun Í sporum kindarinnar Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Þurfum við að óttast gervigreind? Óttar G. Birgisson skrifar Skoðun Skattgreiðendur á TikTok Jens Garðar Helgason skrifar Skoðun Betri borg fyrir börn Bára Birgisdóttir skrifar Skoðun Bókin er betri! Sigþrúður Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Tvær þjóðir í sama landi? Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson skrifar Skoðun Börnin eru þrautseig. Kerfið hefur brugðist grunnfærninni Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hafrannsóknarstofnun á villigötum Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Af hverju talarðu ensku við mig þegar ég tala íslensku? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Þegar smiðirnir sjálfir biðja um að hægja á vélinni Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Viltu vita hvað virkar? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Erlendi ferðamaðurinn - einn besti skattgreiðandi landsins? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hvaða lærdóm má draga af ferðavenjukönnun 2025? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Þversögn íslenskra varna Arnór SIgurjónsson skrifar Skoðun Stjórnarformaður RÚV bregður sér í gervi Ragnars Reykás Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun PISA: Þegar allir þurfa létti, hver heldur þá utan um barnið? Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Hver ver æru hins látna? Theódór Skúli Halldórsson skrifar Skoðun DARVO: Sálfélagslegur glundroði Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun Menntakerfið pólitískur leikvöllur? Anna Kristín Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvað er til ráða? Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson skrifar Sjá meira
Í svari heilbrigðisráðherra við fyrirspurn minni um starfshlutfall lækna hjá Landsítala og Sjúkrahúsinu á Akureyri kemur fram að einungis 271 af 568 læknum á Landspítala eru þar í fullu starfi, eða með starfshlutfall frá 91 til 100 prósent. Tuttugu læknar eru þar í 81 til 90 prósenta starfshlutfalli, fimmtíu læknar í 71 til 80 prósenta starfshlutfalli og tuttugu og þrír læknar eru í 61 til 70 prósenta starfi á Landspítalanum. Samandregið eru því 64 prósent lækna á Landspítalanum með starfshlutfall á bilinu 61 til 100 prósent. Þar með eru 36 prósent læknanna með sextíu prósenta starfshlutfall eða minna. Í svörum ráðherra kemur til að mynda fram að enginn þeirra tólf augnlækna sem þar starfa séu þar í meira en 60 prósenta starfshlutfalli. Þar af eru 79 læknar í tíu prósenta eða minna starfshlutfalli. Það þýðir að 14 prósent lækna á Landspítalanum eru þar í minna en 10 prósenta starfi. Samfella í starfi Landspítala Það geta auðvitað verið margs konar og réttmætar ástæður fyrir litlu starfshlutfalli lækna á Landspítala. Til að mynda eru starfa 143 þeirra einnig eftir samningi Sjúkratrygginga Íslands og Læknafélags Reykjavíkur, eða um fjórðungur þeirra lækna sem vinna á Landspítalanum. Þegar svör heilbrigðisráðherra eru skoðuð vekur það athygli að einungis 51 prósent lækna sem starfa á Landspítalanum eru þar í meira en 80 prósenta starfshlutfalli. Það hefur komið fram í opinberri umræðu að læknar sem einnig vinna utan Landspítala, sinni þar útköllum þegar á þarf að halda. En það hefur einnig komið fram í umræðunni að til að tryggja festu og samfellu í þróun starfsemi á Landspítala sem jafnframt er háskólasjúkrahús, þurfi að hafa hátt hlutfall lækna þar í fullu starfi. Svör heilbrigðisráðherra við fyrirspurn minni gætu því nýst til frekari umræðu um þessi mál. Höfundur er þingmaður Flokks fólksins.
Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar
Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar