20 kíló af þjóðarskömm Hjálmtýr Heiðdal skrifar 16. september 2026 07:15 Stuðningur við hvalveiðar er sjúkdómseinkenni í íslensku þjóðfélagi líkt og að Trump er sjúkdómseinkenni í bandarísku þjóðfélagi. Hvalur hf. í eigu Kristjáns Loftssonar veiðir kelfdar hvalkýr með aðferðum sem orsaka kvalafullan dauðdaga. Rannsóknir sýna að það er ekki mögulegt að aflífa hvali með þeim mannúðlega hætti sem lög leyfa 1). 59% drepinna hvala 2) heyja langvinnt og kvalafullt dauðastríð eftir að skutulsveinar Kristjáns Loftssonar hafa hæfta þá með sínum sprengiskutlum. Drepa viljandi hvalakýr Kappar Kristjáns herja sérstaklega á kálfullar langreyðar. 3) Það er vegna þess að þær eru stærri og þyngri á sér og synda því bæði hægar en karldýrin og þurfa oftar að koma upp til þess að anda og blása. Þannig liggja þær betur við höggi! Hvalveiðar er starfsemi án tilgangs. Það er enginn markaður 4) fyrir hvalkjöt og verslun með hvalaafurðið eru víðast bannaðar. Á tveimur áratugum hefur skipafloti Kristjáns Loftssonar drepið yfir eitt þúsund langreyðar í þeim eina tilgangi að drepa til að geta sagt: „ég á þetta - ég má þetta“. Hagnaður er enginn 5) af hvalveiðunum en fjármunirnir til veiðanna koma til m.a. vegna eignarhluta Hvals hf. í öðrum útgerðarfélögum sem hagnast á þjóðareigninni í hafinu. Hvalur hf. hefur um árabil verið umsvifamikið fjárfestingarfélag á Íslandi og átt hlut í fyrirtækjum á borð við Arion Banka, Marel og Brim hf. Hluthafar Hvals hf. hafa þénað gífurlegar háar upphæðir. Sem dæmi þá komu 365 milljón krónur í hlut eins þeirra árið 2019. Sama ár fekk Kristján Loftsson 222 milljónir í sína buddu. 69 þúsund kíló í afgang! Nýjasta útspil Kristjáns Loftssonar til þess að halda áfram að drepa hvali er að nýta óseljanlegt hvalkjöt til að framleiða járnbætiefni úr kjötinu 6). Í hverju kílói hvalkjöts eru 300 milligröm af járni. Eftir að hafa drepið 70 tonna langreyði nær Kristján 20 kílóum af járni - hvað hann hyggst gera við restina - 69.980 kíló af hval - er ráðgáta. Áætlanir Hvals hf. með 20 kílóin gætu þar að auki strandað á því að sökum þungmálma í kjötinu fengist ekki leyfi til þess að setja það á markað vegna heilbrigðiskrafna. Og eins og fyrr er komið fram þá er sölubann á hvalaafurðum í gildi í flestum ríkjum heims nema í Japan og Noregi. Þjóðarstoltið - látum enga segja okkur fyrir verkum! Fjölmargir pólitíkusar hafa lýst yfir stuðningi við tilgangalausar hvalveiðar. Sumir bera við rétti Íslendinga til þess að nýta náttúruauðlindir og hnýta fullveldisrétti við til frekari áherslu. Aðrir segja að hvalurinn éti fiskinn frá okkur. Hvalur hf. hefur leyfi til að veiða langreyði - hvali sem borða ekki fisk.7) Það er löngu kominn tími til að hætta þessum tilgangslausu villimannslegu veiðum. Höfundur er kvikmyndagerðarmaður. 1) chrome-extension://efaidnbmnnnibpcajpcglclefindmkaj/https://www.stjornarradid.is/library/01-Frettatengt-myndir-og-skrar/MAR/Fylgiskjol/%C3%81lit%20fagr%C3%A1%C3%B0s%20um%20velfer%C3%B0%20d%C3%BDra%20%C3%A1%20hvalvei%C3%B0um.pdf 2) chrome-extension://efaidnbmnnnibpcajpcglclefindmkaj/https://www.stjornarradid.is/library/01-Frettatengt-myndir-og-skrar/MAR/Fylgiskjol/Hvalir_vei%C3%B0ar_velfer%C3%B0_2022_lokask%C3%BDrsla_MAST.pdf 3) https://www.facebook.com/reel/3294348160757377 4) https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-21-helsta-forsenda-fyrir-rettlaetingu-hvalveida-se-brostin-484520 5) https://www.visir.is/g/20232414286d/hvalur-tapadi-thremur-milljordum-a-hval-veidum-a-ara-tug 6) https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-17-haettir-ad-selja-hvalkjot-til-japan-og-vill-framleida-ur-thvi-baetiefni-484144 7) https://www.visir.is/g/20262894205d/hvalir-eta-fra-okkur-fiskinn- Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hjálmtýr Heiðdal Mest lesið Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Sjá meira
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun