Wolt sendlar lögðu niður störf Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 16. september 2026 15:02 Jóhann Már Helgason framkvæmdastjóri Wolt á Íslandi segir samtalið halda áfram við sendla á vegum fyrirtækisins. Framkvæmdastjóri Wolt á Íslandi segir að öllum ábendingum frá sendlum á vegum fyrirtækisins sé tekið alvarlega. Sendlarnir lögðu niður störf tímabundið í dag og segja fyrirtækið hafa lækkað laun sín um fjörutíu prósent á einu ári.
Ríkisútvarpið greindi frá því fyrr í dag að sextíu sendlar hefðu lagt niður störf í morgun og safnast saman fyrir utan höfuðstöðvar Wolt á Íslandi í Ármúla. Sendlarnir segja að laun þeirra séu lág og að þau hafi lækkað um tæpan helming á þessu ári. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem kastljósið beinist að launakjörum Wolt sendla en ASÍ sagði í febrúar á þessu ári að viðskiptamódel fyrirtækisins grafi undan kjarasamningsbundnum réttindum. „Við hjá Wolt tökum ábendingum sendla alvarlega og leitum nú eftir opnu og uppbyggilegu samtali við sendlana þar sem við getum farið yfir stöðuna í sameiningu. Við virðum rétt allra til að koma áhyggjum sínum á framfæri og mótmæla með friðsamlegum hætti. Við erum að fara yfir þau mál sem hafa komið fram og viljum ræða þau beint við sendlana til að skilja betur þeirra sjónarmið og hvað megi bæta,“ segir Jóhann Már Helgason framkvæmdastjóri Wolt á Íslandi í yfirlýsingu til Vísis. Hann segir markmið fyrirtækisins vera að bjóða fyrirkomulag sem sameini sveigjanleika, gagnsæi og tekjumöguleika til lengri tíma. Sendlar sjái fyrirfram hvað þeir fái greitt fyrir hverja sendingu áður en þeir samþykki hana. Þannig geti þeir tekið upplýsta ákvöðun um hvaða sendingar þeir taka að sér og hvenær þeir sinni þeim. „Við söfnum reglulega ábendingum frá sendlum og nýtum þær til að bæta upplifun þeirra af því að nota Wolt. Ánægja sendla á Íslandi mælist nú 4,75 af 5, samanborið við 4,7 af 5 að meðaltali árið 2025. Þótt niðurstaðan sé jákvæð breytir hún ekki því að taka þarf þær áhyggjur sem nú hafa komið fram alvarlega. Við munum halda samtalinu við sendlana áfram og fara yfir með þeim hvað hægt sé að gera betur.“
Heimsendingarþjónusta Kjaramál Mest lesið Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Sjá meira