Einar Þór nýr framkvæmdastjóri Reykjafells Atli Ísleifsson skrifar 17. september 2026 10:44 Kristinn Benediktsson aðstoðarframkvæmdastjóri (t.v.) og Einar Þór Einarsson framkvæmdastjóri í nýjum höfuðstöðvum Reykjafells. Snorri Björnsson Einar Þór Einarsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Reykjafells og Kristinn Benediktsson aðstoðarframkvæmdastjóri.
Í tilkynningu segir að þeir muni saman mynda framkvæmdastjórn félagsins, sem hafi fagnað sjötíu ára afmæli fyrr á þessu ári og flutti í nýjar höfuðstöðvar í febrúar. „Reykjafell var stofnað árið 1956 og er í dag eitt rótgrónasta fyrirtæki landsins á sviði raf- og lýsingarbúnaðar. Félagið veitir rafverktökum, veitum og iðnfyrirtækjum um allt land heildarlausnir í afldreifingu, lagnaefni, lýsingu, töflubúnaði, iðnstýringum og rafbílahleðslu. Í febrúar flutti félagið starfsemi sína í nýjar höfuðstöðvar að Blikastaðavegi 2 við Korputorg, þar sem skrifstofur, vöruhús og þjónusta eru sameinuð undir einu þaki. Einnig rekur það útibú á Akureyri og hefur verið í hópi Framúrskarandi fyrirtækja Creditinfo níu ár í röð,“ segir í tilkynningunni. Um Einar Þór segir að hann hafi víðtæka reynslu úr íslensku atvinnulífi. „Síðast starfaði hann sem framkvæmdastjóri Icelandic Food Company, þar sem hann leiddi umfangsmikla umbreytingu á rekstri félagsins á þremur árum, samhliða því að byggja upp vinnustaðamenningu sem skilaði félaginu í hóp þeirra fyrirtækja sem hæst skora í mælingum á starfsánægju. Áður starfaði hann sem stjórnandi hjá Icelandair og við fjárfestingarbankastarfsemi. Einar Þór lauk BS-prófi í viðskiptafræði frá Eckerd College í Flórída og MBA-gráðu frá Háskólanum í Reykjavík.“ Um Kristinn segir að hann hafi starfað hjá Reykjafelli undanfarin þrjú ár og búi yfir víðtækri þekkingu og reynslu af rafvörumarkaðnum. „Hann hefur gegnt lykilhlutverki í viðskiptaþróun félagsins og uppbyggingu tengsla við viðskiptavini og samstarfsaðila. Sem aðstoðarframkvæmdastjóri mun Kristinn leiða viðskiptaþróun, viðskiptatengsl og söluvöxt félagsins og taka virkan þátt í mótun og framkvæmd stefnu Reykjafells til framtíðar.“
Vistaskipti Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Sjá meira