Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar 18. september 2026 09:30 Í viðtali við RÚV um helgina sagði Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra um afdrif lagareldisfrumvarpsins síðastliðið vor:„Við fórum með þetta af stað af miklum krafti síðastliðinn vetur. Það var mjög vel unnið innan ráðuneytisins og í góðu samtali við atvinnugreinina. Síðan kemur í ljós á lokametrunum að það var ekki samstaða innan greinarinnar um að styðja að málið færi í gegn og það dagar uppi, sem er mjög bagalegt.“Þessi söguskýring kemur nokkuð á óvart. Sömuleiðis hafa aðrir stjórnarþingmenn og jafnvel ráðherrar harmað örlög þessa frumvarp, og jafnvel sagt að stórundarlegar ákvarðanir stjórnvalda á síðustu dögum séu vegna þess að ekkert frumvarp fór í gegn. Það er einnig sérstök söguskýring vegna þess að ekkert í því frumvarpi hefði raunverulega hindrað þessar sömu ákvarðanir.Frumvarpið dagaði ekki uppi vegna þess að fiskeldisgreinin sjálf náði ekki saman. Það dagaði uppi í skugga alvarlegrar gagnrýni sem lá þegar fyrir frá Landssambandi veiðifélaga og fjölda annarra aðila sem bentu á að frumvarpið svaraði ekki grundvallarspurningum um áhættumat erfðablöndunar, eignarrétt veiðiréttarhafa og vernd villtra laxastofna. Frumvarpið svaraði ekki einu sinni gagnrýni Ríkisendurskoðunar frá árinu 2023 til fulls. Landssambandið kallaði sjálft eftir því að ferlið yrði stöðvað og nýtt lagafrumvarp unnið frá grunni.Að lýsa þessu ferli sem mjög vel unnu og skýra það sem gerðist með ósamstöðu innan greinarinnar er í besta falli ófullkomin mynd af því sem raunverulega gerðist. Samráð og samstarf við aðra en fiskeldisfyrirtækin var mjög takmarkað.Laxastofnar skila af sér gríðarlegri verðmætasköpun sem hríslast um allt samfélagið, ekki síst til hinna dreifðu byggða landsins. Þeir hagsmunir voru gefnir lítill gaumur við ritun frumvarpsins, og nú er talað um ósamstöðu innan greinarinnar sem ástæðu þess að það náði ekki fram að ganga.Ef á að uppfæra löggjöf um laxeldi, þá sérstaklega sjókvíaeldi, þarf að taka jafnt tillit til umhverfisverndar, verndar villtra fiskistofna og atvinnulífs tengdu stangveiði, og hagsmuna eldisfyrirtækjanna. Það er auk þess í fullu samræmi við þá orðræðu sem talsmenn sjókvíaeldis halda sjálfir fram, um að þeir vilji hafa eldi í sátt við náttúru og samfélög. Landssamband veiðifélaga hefur ítrekað komið því á framfæri að það sé reiðubúið að taka þátt í gerð slíks frumvarps, frá grunni og með opnum huga um hvernig þessum hagsmunum er best borgið til framtíðar. Höfundur er framkvæmdastjóri Landssambands veiðifélaga. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Fiskeldi Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Draumsýn menntamála Álfhildur Leifsdóttir ,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Sjá meira
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar