Fundi lokið án árangurs fimm dögum fyrir verkfall flugvirkja Birgir Olgeirsson skrifar 18. september 2026 13:52 Samninganefndir flugvirkja og Icelandair voru boðaðar til fundar hjá Ástráði Haraldssyni ríkissáttasemjara á hádegi. Formlegar viðræður höfðu legið niðri síðan í júní. Einar Fundur flugvirkja og Icelandair hjá ríkissáttasemjara lauk án árangurs í dag. Að óbreyttu hefst ótímabundið verkfall flugvirkja aðfaranótt miðvikudagsins 23. september, eftir fimm daga.
Samninganefndirnar komu saman á hádegi á fyrsta formlega samningafundinum síðan slitnaði upp úr viðræðum 22. júní. Samningar flugvirkja hafa verið lausir frá áramótum. Óskar Einarsson, formaður Flugvirkjafélags Íslands, ræddi við fréttastofu fyrir fundinn og var spurður hvernig hann hefði komið til. „Fundurinn er svolítið tilkominn á okkar frumkvæði, en það er bara partur af deilu sem þessari að menn þurfa að hittast og reyna að finna lausn á vandamáli eða á deilunni.“ Spurður hvort einhver framgangur í óformlegum samskiptum hefði orðið tilefni fundarins svaraði hann: „Nei, ég myndi nú ekki segja það en við erum alltaf að leitast til að ná sátt.“ Launin standa eftir Óskar sagði nokkur atriði hafa verið sett til hliðar í viðræðunum þar sem aðilar teldu sig sammála um þau. „En varðandi launaliðinn þá hefur ekkert þokast í því.“ Óskar Einarsson, formaður Flugvirkjafélags Íslands, sagði fundinn að hluta til kominn að frumkvæði flugvirkja. Hann sagði fundarboðið þó ekki til marks um að dregið hafi saman með deiluaðilum.Einar Flugvirkjafélagið hefur borið grunnlaun félagsmanna sinna saman við laun iðnfræðinga sem Samtök atvinnulífsins semja einnig við. Samkvæmt tölum félagsins hækkuðu grunnlaun flugvirkja um 27,2 prósent á árunum 2019 til 2025 en samanburðarhópsins um 50,8 prósent. Munurinn á hækkununum er því 23,6 prósentustig. Félagið segir flugvirkja hafa tekið á sig kjaraskerðingu með langtímasamningi í heimsfaraldrinum. Um tilboð Icelandair sagði Óskar: „Þeir bjóða 3,5% sem er það sem er á almennum markaði. En það er í rauninni ekki verið að, hérna, deila um það. Við erum að deila um það sem við teljum okkur eiga inni og höfum dregist aftur úr með.“ Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, hefur á móti sagt flugvirkja hafa fengið hækkanir í takt við almenna vinnumarkaðinn og félagið hafa teygt sig eins langt og það geti. Icelandair hefur einnig lagt til að óháður gerðardómur skeri úr ágreiningi um launaliðinn. Getur lagt fram miðlunartillögu Ríkissáttasemjari hefur fleiri en eina leið til að leggja fram sáttatillögur. Innanhússtillaga er óformleg tillaga sem samninganefndirnar taka afstöðu til. Formleg miðlunartillaga byggist hins vegar á lögum og er borin undir atkvæði. Sáttasemjara ber að ráðfæra sig við nefndirnar áður en hann leggur hana fram, en þarf ekki samþykki þeirra til þess. Óskar var fyrir fundinn spurður hvernig flugvirkjar myndu taka miðlunartillögu. „Það er eitthvað sem við bara skoðum en það þarf þá að innihalda eitthvað sem okkur hugnast.“ Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari getur lagt fram miðlunartillögu sem færi í atkvæðagreiðslu. Deiluaðilar gætu samið um að fresta verkfallinu meðan kosið væri, en frestunin væri ekki sjálfkrafa.Einar Komi til slíkrar tillögu geta deiluaðilar samið um að fresta verkfallinu meðan greitt er atkvæði um hana. Framlagningin ein og sér frestar aðgerðunum ekki. Í Eflingardeilunni árið 2023 kom upp hindrun við framkvæmd atkvæðagreiðslu þegar Landsréttur hafnaði kröfu um að knýja félagið til að afhenda kjörskrá, lista yfir atkvæðisbæra félagsmenn. Niðurstaðan afnam þó ekki heimild sáttasemjara til að leggja fram miðlunartillögu. Segir tilkynningar „menga samningaviðræðurnar“ Icelandair stofnaði fyrr á árinu dótturfélag í Vilníus sem sinnir skipulagi og eftirliti með viðhaldi flugvéla í langtímaleigu hjá erlendum viðskiptavinum. Félagið hefur einnig keypt 49 prósenta hlut í starfsemi Play á Möltu. Óskar sagði verkefni sem hefðu tilheyrt flugvirkjum hér á landi færast til Litháens og tilkynningar um erlenda starfsemi „menga samningaviðræðurnar“. Hann taldi fjárfestingu í erlendu flugrekstrarleyfi og skráningu véla erlendis fela í sér félagsleg undirboð. Spurður hvort þessi mál gætu staðið út af þótt samkomulag næðist um launin tók hann fram að þau væru ekki hluti kjaraviðræðnanna sjálfra. Gagnrýnin sneri meðal annars að tímasetningunni. Óskar Einarsson segir flugvirkja ávallt reiðubúna að veita undanþágur frá verkfalli skapist neyðarástand. Að óbreyttu hefst ótímabundið verkfall þeirra 23. september.einar „Þetta er allavegana tilkynnt meðan að samningar eru í gangi og það finnst mér vera mjög óeðlilegt.“ Icelandair sagði við Vísi í apríl að starfsemin í Vilníus ætti að styrkja leiguverkefni félagsins og engum hefði verið sagt upp vegna breytinganna. Bogi sagði á laugardag að engin áform væru um breytingar á viðhaldi véla í leiðakerfinu til og frá Keflavík vegna Möltukaupanna. Þau ættu að styrkja innviði félagsins og styðja við vöxt þess hér á landi. Reiðubúnir að veita undanþágur Óskar sagði flugvirkja ávallt reiðubúna að veita undanþágur frá verkfallsaðgerðum skapist neyðarástand. Hann var einnig spurður um viðvaranir ferðaþjónustunnar um mikið fjárhagslegt tjón. Hann sagðist ekki hafa gögn til að meta hvort tölurnar sem nefndar hefðu verið væru réttar eða rangar. Yfirvofandi verkfall hefur þegar haft áhrif á ferðaáætlanir. Rúmlega þúsund farþegar höfðu í gær nýtt sér boð Icelandair um að færa flug. Boðið nær til bókana 23. og 24. september og breytingar ráðast af sætaframboði.
Kjaradeila Icelandair og flugvirkja 2026 Icelandair Kjaramál Vinnumarkaður Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Innlent „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Innlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku Innlent Hafnað með afgerandi hætti Erlent „Tíminn er á þrotum“ Erlent Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Erlent Fleiri fréttir „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Sjá meira