Sport

Erfið og leiðin­leg staða fyrir Heimi að vera í

Aron Guðmundsson skrifar
Írska landsliðið, undir stjórn Heimis Hallgrímssonar, stendur nú í snúnu verkefni og fyrirhugaðir leikir gegn Ísrael í Þjóðadeildinni hafa valdið usla heima fyrir.
Írska landsliðið, undir stjórn Heimis Hallgrímssonar, stendur nú í snúnu verkefni og fyrirhugaðir leikir gegn Ísrael í Þjóðadeildinni hafa valdið usla heima fyrir. Vísir/Samsett

Pólitíkin og alþjóðamálin náðu að teygja anga sína í Besta sætið í dag. Ísraelar eru ósáttir með Heimi Hallgrímsson og pressa á Írlandi að landsliðið sniðgangi leiki sína við Ísrael í Þjóðadeildinni.

Landsleikjapása sem hefur farið fremur fjörlega af stað. Íslenska landsliðið kom saman á sinni fyrstu æfingu fyrir verkefni í Þjóðadeildinni í dag. Spennan magnast og gefst fjölmiðlum kostur á fyrstu viðtölum við landsliðsmenn í dag. 

Það ríkir ólga á Írlandi fyrir leiki írska landsliðsins gegn Ísrael í Þjóðadeildinni. Ísraelar eru ósáttir með það hvernig Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari Íra, tjáði hug sinn á blaðamannafundi. Mótmæli og hávær köll um sniðgöngu eru til staðar á Írlandi. Við förum yfir stöðuna í Besta sætinu. 

Þá förum við yfir spennandi leiki og fulltrúa Íslands í Meistaradeild Evrópu í fótbolta í kvöld. 

Rúnar Már Sigurjónsson hefur þá ákveðið að leggja knattspyrnuskóna á hilluna eftir farsælan feril að yfirstandandi tímabili loknu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×