Fótbolti

Bein út­sending: Þor­steinn kynnir hópinn fyrir HM-leiki við Króata

Sindri Sverrisson skrifar
Sveindís Jane Jónsdóttir er á sínum stað í íslenska hópnum og hefur verið að spila frábærlega í Bandaríkjunum með Angel City.
Sveindís Jane Jónsdóttir er á sínum stað í íslenska hópnum og hefur verið að spila frábærlega í Bandaríkjunum með Angel City. Getty/Bradley Collyer

Vísir er með beina útsendingu frá Laugardalsvelli í dag þar sem Þorsteinn Halldórsson, þjálfari kvennalandsliðsins í fótbolta, kynnir nýjasta landsliðshóp sinn.

Um er að ræða hópinn sem mætir Króatíu í tveggja leikja einvígi í október. Sigurliðið mætir svo Portúgal eða Norður-Írlandi í úrslitaeinvígi um sæti á HM í Brasilíu næsta sumar.

Ljóst er að Ísland verður án leikmanna á borð við Söndru Maríu Jessen, Sædísi Rún Heiðarsdóttur og Lindu Líf Boama, sem eru meiddar, og miðvörðinn Ingibjörgu Sigurðardóttur sem gengur með sitt fyrsta barn.

Blaðamannafundinn má sjá í spilara hér að neðan en hann hefst klukkan 13:15.

Fyrri leikurinn við Króatíu er á útivelli 9. október en sá seinni á Laugardalsvelli 13. október.

Landsliðshópur Íslands:

  • Telma Ívarsdóttir - Víkingur R. - 12 leikir
  • Cecilía Rán Rúnarsdóttir - Inter Milan - 31 leikur
  • Fanney Inga Birkisdóttir - Vålerenga - 8 leikir
  • Hafrún Rakel Halldórsdóttir - Bröndby IF - 18 leikir, 1 mark
  • María Catharina Ólafsd. Gros - Djurgårdens IF FF - 2 leikir
  • Glódís Perla Viggósdótttir - FC Bayern München - 148 leikir, 13 mörk
  • Guðrún Arnardóttir - Hammarby IF - 63 leikir, 1 mark
  • Arna Eiríksdóttir - Vålerenga - 4 leikir
  • Natasha Moraa Anasi - Grindavík/Njarðvík - 9 leikir, 1 mark
  • Líf Joostdóttir van Bemmel - Breiðablik
  • Alexandra Jóhannsdóttir - Kristianstads DFF - 65 leikir, 7 mörk
  • Katla Tryggvadóttir - AFC Fiorentina - 13 leikir
  • Karólína Lea Vilhjálmsdóttir - Inter Milan - 64 leikir, 15 mörk
  • Ída Marín Hermannsdóttir - Hammarby IF - 9 leikir
  • Hildur Antonsdóttir - Newcastle United - 37 leikir, 2 mörk
  • Emilía Kiær Ásgeirsdóttir - RB Leipzig - 15 leikir, 1 mark
  • Ásdís Karen Halldórsdóttir - AIK FF - 2 leikir
  • Birta Georgsdóttir - Parma Calcio 1913 S.R.L. - 2 leikir
  • Sveindís Jane Jónsdóttir - Angel City FC - 60 leikir, 16 mörk
  • Hlín Eiríksdóttir - Malmö FF - 60 leikir, 8 mörk
  • Diljá Ýr Zomers - Brann - 27 leikir, 2 mörk
  • Emelía Óskarsdóttir - HB Koge
  • Thelma Karen Pálmadóttir - BK Häcken FF - 5 leikir, 1 mark



Fleiri fréttir

Sjá meira


×