Erlent

Fundu elds­neyti en engin sprengi­efni í bílunum

Freyja Þórisdóttir skrifar
Það vakti mikla furðu að mönnunum fimm hafi verið sleppt enda var neyðarástandi lýst yfir og öryggisráðstafanir í herstöðinni voru auknar til muna. Embættismenn töluðu um að komið hefði verið í veg fyrir hörmulega atburði.
Það vakti mikla furðu að mönnunum fimm hafi verið sleppt enda var neyðarástandi lýst yfir og öryggisráðstafanir í herstöðinni voru auknar til muna. Embættismenn töluðu um að komið hefði verið í veg fyrir hörmulega atburði. Getty

Leit í þremur sendiferðabílum sem voru nærri RAF Fairford-herstöðinni í Englandi er lokið en þar fannst nokkuð magn af bensíni en engin sprengiefni eins og talið var. Fimm breskum ríkisborgurum var í gær sleppt úr haldi en þeir höfðu verið handteknir vegna gruns um skipulagningu hryðjuverks og neyðarástandi lýst yfir við herstöðina í kjölfarið.

Er þetta meðal þess sem fram kemur í umfjöllun breska ríkisútvarpsins (BBC) um málið. Fimm menn, allir breskir ríkisborgarar á þrítugsaldri, voru handteknir grunaðir um að hafa brotið lög um sprengiefni og síðar skipulagninu hryðjuverks eftir að þeir sáust aka um á sendiferðabílum nærri bresku herstöðinni síðasta sunnudag, þann 27. september.

Grunur lék þá á að sprengjur væru í bílunum þremur og leiddi það til umfangsmikilla öryggisaðgerða í kringum herstöðina sem er rekin af Bandaríkjaher en notuð af bæði breska og bandaríska flughernum.

Þeim var sleppt gegn tryggingu í gær, mánudaginn 28. september, en yfirmaður hryðjuverkalögreglu Bretlands sagði að þeir yrðu undir nánu eftirliti og takmarkanir yrðu settar á ferðir þeirra og samskipti við aðra.

Mennirnir voru handteknir eftir að tilkynning barst frá bónda á svæðinu um grunsamlega menn á ferðinni á sendiferðabílum. Þá hafði bóndinn séð mennina í lambhúshettum við bílana og reyndu einhverjir þeirra að fela sig þegar lögreglan ók fram hjá þeim.

Búið var að merkja bílana tilteknu fyrirtæki, en nafnið var rangt og rangur litur á merki fyrirtækisins. Þetta fyrirtæki flytur eldsneyti á bóndabæi í Bretlandi og hafði verið talið líklegt að tunnur af bensíni fyndust í bílnum. Það reyndist svo vera rétt.

Meðal þeirra sem lýstu yfir furðu sinni á því að mönnunum fimm hafi verið sleppt eru Donald Trump forseti Bandaríkjanna og Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna, en sá síðarnefndi sagðist ekki átta sig á því af hverju Bretar slepptu mönnunum úr haldi.

Þá kallaði Andy Burnham forsætisráðherra Bretlands ráðherra sína til fundar vegna atviksins. Um var að ræða svonefndan COBRA-fund, þar sem ráðherrar, háttsettir embættismenn og aðrir lykilaðilar hittast til að samræma viðbrögð við alvarlegum atburðum.


Tengdar fréttir

Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks

Fimm voru handteknir nærri herflugstöðinni Fairford í Englandi í nótt eftir að íbúar þorps á svæðinu hringdu í lögreglu vegna þriggja sendiferðabíla sem þóttu grunsamlegir. Hringt var á lögregluna skömmu fyrir klukkan eitt í nótt en mennirnir sem voru í kjölfarið handteknir hafa verið sakaðir um brot á lögum um sprengiefni. Þeir liggja einnig undir grun um skipulagningu hryðjuverka.

Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi

Lögreglan í Bretlandi hefur sleppt úr haldi fimm mönnum sem grunaðir eru um að hafa brotið lög um sprengiefni og eru grunaðir um skipulagningu hryðjuverks. Mennirnir voru handteknir nærri stórri breskri herstöð á sunnudaginn en verður sleppt gegn tryggingu en yfirmaður hryðjuverkalögreglu Bretlands segir að þeir verði undir nánu eftirliti og takmarkanir settar á ferðir þeirra og samskipti við aðra.

Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn

Breska hryðjuverkalögreglan rannsakar nú hvort Íran standi að baki meintum sprengjuáformum eftir að vopnaðir lögreglumenn fundu sprengiefni í þremur sendibílum sem lagt hafði verið í nokkurra mínútna fjarlægð frá herstöð Bandaríkjanna í Fairford í Gloucestershire í Bretlandi í gær. Bandaríski flugherinn hefur notað herstöðina í aðgerðum gegn Íran samkvæmt frétt Guardian.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×