Sport

„Ronaldo er elsta frekjudolla í heimi“

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Cristiano spilar kannski aldrei aftur fyrir portúgalska landsliðið.
Cristiano spilar kannski aldrei aftur fyrir portúgalska landsliðið. vísir/getty

Málefni Cristiano Ronaldo voru ofarlega í huga Besta sætisins í dag.

Eins og flestum ætti að vera kunnugt yfirgaf hann herbúðir portúgalska landsliðsins fússi og flaug frá Köben í einkaþotu sinni.

Framtíð hans hjá portúgalska landsliðinu er því algjöru uppnámi og spurning hvort hann muni nokkurn tíma spila aftur fyrir portúgalska landsliðið.

Mál Man. City bar eðlilega einnig á góma í þætti dagsins og mun gera það næstu vikurnar og líklega mánuði.

Svo er Heimir Hallgrímsson á ferðinni með Írana sína í kvöld er búist við mótmælum og meiri látum í kringum írska liðið.

Besta sætið er aðgengilegt á öllum helstu hlaðvarpsveitum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×