Sport

„Alla vikuna höfum við verið af­skrifuð af ykkur fjöl­miðlum“

Stefán Marteinn Ólafsson skrifar
Jamil Abiad þjálfari Vals
Jamil Abiad þjálfari Vals Anton Brink/Vísir

Valskonur unnu gríðarlega öflugan sigur á Íslandsmeisturum Njarðvíkur í fyrstu umferð Bónus deild kvenna 77-64. Jamil Abiad þjálfari Vals var að vonum sáttur í leikslok.

„Stelpurnar mættu vel gíraðar í kvöld. Allt frá vörninni okkar, til undirbúningstímabilsins og þá mættum við með eitthvað til að sanna“ sagði Jamil Abiad þjálfari Vals.

„Alla vikuna höfum við verið afskrifuð af ykkur fjölmiðlum og sagt að við séum ekki með nógu gott lið því við höfum misst nokkra leikmenn“

„Síðustu tvö tímabil höfum við sýnt að við séum með gott lið og við erum meira en bara einhverjir tveir leikmenn og stelpurnar sýndu það í kvöld. Allt frá bekknum og allar stelpurnar á gólfinu þá var þetta mikill liðssigur í kvöld“

Hrikalega öflug byrjun á tímabilinu hjá Val sem vinna Íslandsmeistarana.

„Þetta er stórt. Sjálfstraust er allt í íþróttum og við sýndum í kvöld að við getum keppt við bestu liðin. Þetta eru ríkjandi Íslandsmeistarar og allar spár spá þeim að verja titilinn svo þetta er ekki bara stór sigur fyrir stelpurnar núna heldur byggir þetta sjálfstraust farandi inn í tímabilið“

„Þetta sýnir bara hversu hart þær eru að leggja á sig og ég vona bara að allir sem hafi horft hér í kvöld geti étið hatt sinn og skilið að það eru ekki bara einn eða tveir leikmenn sem gera lið og ég er ótrúlega stoltur af stelpunum í kvöld“

Aðspurður um það hver væri helsti munurinn á liðunum í kvöld var svarið einfalt.

„Þetta var bara kraftur, ákefð og löngun til að sanna okkur. Allar stelpurnar sáu spárnar í sjónvarpinu, þær sáu neikvæðnina frá öllum í sjónvarpinu og þær tóku það bara út á gólfinu hérna í kvöld og unnu frábæran liðssigur“

Það mátti heyra á Jamil að hann væri ekki sáttur með að vera spáð neðarlega en Vali var spáð 7. sæti deildarinnar af spámönnum.

„Ég tek alla jákvæðnina og alla neikvæðnina. Þetta er allt hluti af íþróttum en við látum verkin tala“ sagði Jamil Abiad.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×