Handbolti

Viktor Gísli fékk silfur á HM eftir að gamall fé­lagi stal senunni

Sindri Sverrisson skrifar
Viktor Gísli Hallgrímsson varð að sætta sig við silfur á HM.
Viktor Gísli Hallgrímsson varð að sætta sig við silfur á HM. Getty/Vitalii Kliuiev

Viktor Gísli Hallgrímsson stóð í marki Barcelona hálfan leikinn gegn ungverska liðinu Veszprém í úrslitaleik HM félagsliða í handbolta í Egyptalandi í gær. Hans gamli samstarfsmaður reyndist maður leiksins og var valinn mikilvægastur á mótinu.

Veszprém vann stórsigur í úrslitaleiknum, 42-33, og var danski landsliðsmarkvörðurinn Emil Nielsen valinn maður leiksins en hann varði 12 af 42 skotum sem hann fékk á sig, samkvæmt leikskýrslu IHF.

Nielsen fór frá Barcelona til Veszprém í sumar og reyndist sínum gömlu liðsfélögum erfiður. Hann var svo valinn mikilvægasti maður mótsins.

Viktor Gísli deilir nú markvarðarstöðunni með spænska landsliðsmarkverðinum Sergey Hernández og áttu þeir svipaða frammistöðu í gær. Viktor Gísli varði 4 af 23 skotum, eða 17%, á meðan að Hernández varði 4 af 25 skotum sem hann fékk á sig, eða 16%.

Franski hornamaðurinn Hugo Descat var markahæstur í leiknum með tíu mörk úr ellefu skotum og Nedim Remili skoraði átta mörk. Hjá Börsungum var Timothey N‘Guessan markahæstur með níu mörk úr þrettán skotum.

Descat endaði markahæstur á mótinu með 35 mörk en þeir Nielsen voru hins vegar ekki valdir í stjörnulið mótsins. Hefð er fyrir því í handboltanum að mikilvægasti leikmaðurinn sé ekki líka í stjörnuliðinu og var félagi Viktors Gísla, Hernández, valinn sem markvörður í stjörnuliðið.

Stjörnuliðið á HM félagsliða 2026:

  • Markvörður: Sergey Hernández Ferrer (FC Barcelona)
  • Hægra horn: Yanis Lenne (Veszprém HC)
  • Hægri skytta: Youssef Ahmed (Zamalek Club)
  • Miðja: Mohamed Hesham (Al Ahly)
  • Vinstri skytta: Ahmed Hesham (Veszprém HC)
  • Vinstra horn: Ian Barrufet Torrebejano (FC Barcelona)
  • Línumaður: Ludovic Fàbregas (FC Barcelona)

Dýrmætasti leikmaður: Emil Nielsen (Veszprém HC)

Markahæstur: Hugo Descat (Veszprém HC) – 35 goals




Fleiri fréttir

Sjá meira


×