Körfubolti

Álfta­nesi spáð sigri í Bónus-deild karla

Sindri Sverrisson skrifar
Haukur Helgi Pálsson og félagar í Álftanesi ætla sér að berjast um titla í vetur.
Haukur Helgi Pálsson og félagar í Álftanesi ætla sér að berjast um titla í vetur. vísir/Anton

Álftnesingar hafa verið öflugir á leikmannamarkaðnum í sumar og sömuleiðis fengið Baldur Þór Ragnarsson sem þjálfara. Þeir hlutu nokkuð afgerandi kosningu sem líklegasta liðið til að ná efsta sæti Bónus-deildarinnar í körfubolta í vetur.

Álftanes og Tindastóll skáru sig úr í spá formanna, fyrirliða og þjálfara félaganna tólf í deildinni. Álftnesingar hlutu 354 stig af 363 mögulegum en Tindastóll kom næstur með 334 stig. KR varð svo í þriðja sæti en Íslandsmeistarar Grindavíkur í 4. sæti í spánni.

Ármanni og nýliðum Sindra er spáð falli en því er spáð að nýliðar Hattar haldi sér uppi.

Spáin í Bónus-deild karla 2026-27:

  1. Álftanes 354
  2. Tindastóll ​ 334
  3. KR 279
  4. Grindavík 269
  5. Stjarnan 253
  6. Keflavík 210
  7. Valur 193
  8. Njarðvík 136
  9. ÍR 124
  10. Höttur 109
  11. Sindri 79
  12. Ármann 40

Hæstu möguleg stig: 363

Lægstu möguleg stig: 33

Fyrsta umferð í Bónus-deildinni fer fram næsta fimmtudag og föstudag. Tímabilið hefst hins vegar annað kvöld þegar Íslandsmeistarar Grindavíkur mæta bikarmeisturum KR í Meistarakeppni KKÍ, í beinni útsendingu á Sýn Sport Ísland.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×