Sport

„Ekki rétti maðurinn til að gefa full­komið svar við spurningunni“

Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar
Atanas Ribarski stýrði fyrsta leiknum sínum með Búlgaríu í dag.
Atanas Ribarski stýrði fyrsta leiknum sínum með Búlgaríu í dag. @TeamBulgaria

Atanas Ribarski stýrði  Búlgaríu í fyrsta sinn í dag þegar liðið tapaði 3-0 gegn Íslandi. Ribarski tók tímabundið við liðinu fyrir leikinn eftir að Aleksandar Dimitrov sagði starfi sínu lausu þar sem hann taldi sig hafa misst traust leikmanna.

„Ég get ekki verið ánægður með frammistöðu liðsins í dag. Við komum inn í leikinn og spiluðum fyrri hálfleikinn af mikilli orku og sýndum hluta af okkar hæfileikum. En því miður fengum við á okkur mark og eftir það var leikáætlunin okkar sú sama, hún virkaði ekki vel,“ sagði Atanis Ribarski, þjálfari Búlgaríu, eftir leikinn.

„Það eina jákvæða sem ég get tekið úr leiknum er að leikmennirnir sýndu að þeir voru ákafir í að sýna hæfileika sína á vellinum í dag og sýna hvað þeir geta í raun og veru.“

Ribarski taldi að neikvæðu atriðin hafi verið töluvert fleiri en þau jákvæðu.

„En því miður eru neikvæðu atriðin og neikvæðu lærdómarnir sem við tökum úr leiknum mun fleiri en þeir jákvæði. Þetta lið er enn í mótun og þegar það kemur að því að byggja upp leikstíl er þetta klárlega eitthvað sem við þurfum að vinna í.“

„Við vissum að Ísland myndi spila boltanum mjög hratt þegar þeir væru með hann, og það raungerðist, það er eitthvað sem við viljum vinna í.“

Að lokum var Ribarski spurður út í hrun búlgarskrar knattspyrnu í ljósi þess að landið hefur alið af sér margar goðsagnir í gegnum tíðina.

„Ég er ekki rétti maðurinn til að gefa fullkomið svar við spurningunni þinni. Eitt sem ég get verið sammála þér um er að þessi staða ætti ekki að endurspegla sögu búlgarskrar knattspyrnu. Ein möguleg leið út úr þessu er að vinna, standa saman og vinna að því markmiði að færa dýrðardagana aftur til búlgarskrar knattspyrnu.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×