Handbolti

Elín Klara í ham í Austur­ríki | Sveinar Guð­jóns misstu Kiel fram úr sér

Sindri Sverrisson skrifar
Elín Klara Þorkelsdóttir er algjör lykilmaður í sænska meistaraliðinu Sävehof sem hún kveður svo næsta sumar þegar hún flytur til Danmerkur.
Elín Klara Þorkelsdóttir er algjör lykilmaður í sænska meistaraliðinu Sävehof sem hún kveður svo næsta sumar þegar hún flytur til Danmerkur. Getty/Marijan Murat

Elín Klara Þorkelsdóttir var markahæst hjá Sävehof í sigri í Evrópudeildinni í handbolta í dag. Íslendingalið Gummersbach mætti Kiel í efstu deild karla í Þýskalandi og Börsungar unnu risasigur gegn Alicante. Fjöldi íslenskra handboltamanna var á ferðinni í dag.

Elín Klara skoraði átta mörk fyrir Sävehof úr ellefu skotum og átti stóran þátt í 31-27 útisigri gegn Hypo Niederösterreich í Austurríki. Þetta var fyrri leikur liðanna en þau mætast svo í Svíþjóð eftir viku og þá ræðst hvort þeirra kemst áfram í þriðju og síðustu umferð undankeppni Evrópudeildarinnar.

Þýska Íslendingaliðið Blomberg-Lippe er hins vegar enn án sigurs í Meistaradeild Evrópu, eftir 33-31 tap á heimavelli gegn Podravka frá Króatíu. Elín Rósa Magnúsdóttir skoraði tvö mörk og Díana Dögg Magnúsdóttir eitt.

Kiel sýndi mátt sinn í seinni hálfleik

Í Þýskalandi vann Melsungen 28-22 gegn Hannover-Burgdorf í Íslendingaslag. Reynir Þór Stefánsson skoraði fjögur mörk fyrir Melsungen og Sigvaldi Björn Guðjónsson þrjú mörk fyrir gestina. 

Bæði lið eru nú með níu stig eftir sjö umferðir, í 4. og 5. sæti.

Lærisveinar Guðjóns Vals Sigurðssonar í Gummersbach urðu að sætta sig við þriggja marka tap á útivelli gegn stórveldi Kiel, 29-26, eftir að hafa verið 15-13 yfir í hálfleik.

Kiel náði forystunni, 19-18, þegar tíu mínútur voru liðnar af seinni hálfleik og náði smám saman 3-4 marka forskoti sem liðið hélt út leikinn.

Elliði Snær Viðarsson skoraði fimm mörk og var næstmarkahæstur í liði Gummersbach en Teitur Örn Einarsson og Garðar Ingi Sindrason voru ekki á meðal markaskorara. Slóveninn Domen Makuc var markahæstur hjá Kiel með átta mörk.

Gummersbach hafði unnið tvo síðustu deildarleiki en er núna með sjö stig eftir sjö leiki, í 9. sæti þýsku deildarinnar. Kiel er með 13 stig í 2. sæti, jafnmörg og Flensburg sem á leik til góða.

Risasigur Börsunga án Viktors

Barcelona vann risasigur gegn Alicante í spænsku úrvalsdeildinni, 46-31, þrátt fyrir að vera án landsliðsmarkvarðarins Viktors Gísla Hallgrímssonar.

Janus Daði Smárason skoraði tvö marka Barcelona í leiknum.

Janus, Viktor og félagar höfðu þurft að sætta sig við silfurverðlaun á HM félagsliða í Egyptalandi á fimmtudaginn en möguleg ferðaþreyta kom ekki í veg fyrir risasigur þeirra og hafa spænsku meistararnir nú unnið fyrstu þrjá deildarleiki sína á tímabilinu.

Donni með fimm í tapleik

Kristján Örn Kristjánsson, eða Donni, var næstmarkahæstur hjá SAH sem tapaði 35-31 á útivelli gegn Bjerringbro-Silkeborg í dönsku úrvalsdeildinni.

Donni skoraði fimm mörk í leiknum en það dugði skammt. Rasmus Lauge var langmarkahæstur á vellinum með 13 mörk fyrir heimamenn. SAH er nú með 10 stig í 5. sæti en Bjerringbro-Silkeborg með stigi minna.

Íslendingar fögnuðu sigri í Svíþjóð

Í sænsku úrvalsdeildinni vann Íslendingaliðið Kristianstad 30-27 útisigur gegn Hallby. Andri Erlingsson og Baldur Fritz Bjarnason skoruðu tvö mörk hvor og Einar Bragi Aðalsteinsson eitt en Ólafur Guðmundsson var ekki á meðal markaskorara.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×