Sport

Dag­skráin í dag: Haaland í Portúgal, For­múla 1 og kapp­hlaup Blika og FH-inga

Sindri Sverrisson skrifar
Portúgalar þurfa að glíma við Erling Haaland í kvöld í beinni útsendingu á Sýn Sport Viaplay.
Portúgalar þurfa að glíma við Erling Haaland í kvöld í beinni útsendingu á Sýn Sport Viaplay. Getty/Diogo Cardoso

Það er af nægu að taka á sportrásum Sýnar í dag. Formúlu 1 kappakstur, NFL Red Zone, stórleikur í Þjóðadeildinni í fótbolta og mikilvægir leikir í titilibaráttunni í Bestu deild kvenna.

Formúlu 1 kappaksturinn í Malasíu hefst snemma eða klukkan 6:30 og gæti því verið í fullum gangi þegar þetta er lesið.

Erling Haaland og félagar í norska landsliðinu mæta Ronaldo-lausum Portúgölum á útivelli klukkan 18:45, í A-deild Þjóðadeildarinnar, á Sýn Sport Viaplay. Fyrr um daginn má sjá leik Kósovó og Austurríkis klukkan 16.

Titilbaráttan í Bestu deild kvenna heldur áfram og mega FH-ingar helst ekki misstíga sig á heimavelli gegn ÍBV. Sá leikur er á Sýn Sport Ísland 2 klukkan 14. Breiðablik tekur á móti Þrótti á sama tíma á Sýn Sport Ísland.

Bestu mörkin taka svo við strax eftir leikina, eða um klukkan 16:05.

NFL-aðdáendur fá nóg fyrir sinn snúð og hefst bein útsending frá leik Indianapolis Colts og Washington Commanders á Sýn Sport klukkan 13:30. Menn ættu svo að stilla inn á Sýn Sport 3 klukkan 16:55 þegar NFL Red Zone hefst, nú eða fylgjast bara með leik Philadelphia Eagles og Los Angeles Rams á Sýn Sport. Um kvöldið er svo leikur á milli San Francisco 49ers og Denver Broncos.

Upplýsingar um allar beinar útsendingar Sýnar má finna hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×