Erlent

Tveir látnir eftir skot­á­rás í Noregi

Tómas Arnar Þorláksson skrifar
Mynd af lögreglubíl í Noregi. Myndin tengist ekki fréttinni með öðrum hætti.
Mynd af lögreglubíl í Noregi. Myndin tengist ekki fréttinni með öðrum hætti. vísir/epa

Mikill viðbúnaður lögreglu var í bænum Halden í morgun eftir skotárás þar sem tveir létust og einn særðist. Einn er í haldi lögreglu vegna málsins. Þeir þrír sem urðu fyrir skotum voru allir hluti af veiðihópi.

Lögreglan hefur tryggt vettvang og ekki er talin hætta á ferðum fyrir almenning. Árásarmaðurinn var ekki hluti af umræddum veiðihóp.

Halden hefur komið á fót neyðarstjórn vegna málsins en skotárásin átti sér stað snemma í morgun og sendi lögregla á svæðinu frá sér tilkynningu vegna þessa rétt fyrir klukkan átta að staðartíma. Klukkan ellefu staðfesti lögreglan að tveir hafi verið skotnir til bana. Sá þriðji er þungt haldinn á gjörgæsludeild Ullevål-spítalans.

Norska ríkisútvarpið (NRK) greinir frá. 

Halden er suðaustan við Osló en þar búa rúmlega 30 þúsund manns. Lögreglan á svæðinu rannsakar nú málið.

Íbúar á svæðinu segja í samtali við NRK að viðbúnaður lögreglu hafi verið umfangsmikill. Minnst þrjár þyrlur sinntu útkallinu. Fredrik Holm, bæjarstjóri Halden, segir að neyðarstjórn sinni nú málinu.

„Við vinnum að því að ná yfirsýn yfir málið og erum í samstarfi við lögregluna til að safna réttum upplýsingum. Við undirbúum okkur til að sinna aðstandendum eins og þörf krefur.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×