Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Kjartan Kjartansson skrifar 6. október 2026 11:49 Guðmundur Ari Sigurjónsson, þingflokksformaður Samfylkingar og frambjóðandi til varaformanns, fylgist grannt með í þingsal. Vísir/Vilhelm Enginn hefur enn boðið sig fram gegn þingflokksformanni Samfylkingarinnar í varaformannskjöri sem fer fram á flokksstjórnarfundi um helgina. Fundurinn verður haldinn í Suðurnesjabæ þar sem meirihlutasamstarf Samfylkingar við Sjálfstæðisflokk sprakk í loft upp um helgina.
Guðmundur Ari Sigurjónsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, er einn í framboði til varaformanns enn sem komið er. Framboðsfrestur er þó þar til á fundinum sjálfum sem fer fram laugardaginn 10. október. Aðeins þeir sem eiga sæti í flokksstjórn Samfylkingarinnar geta boðið sig fram til varaformannsembættisins og hafa kosningarétt í kjörinu. Boðað er til varaformannskjörsins vegna þess að Guðmundur Árni Stefánsson óskaði eftir lausn frá embættinu eftir sveitarstjórnarkosningar í vor. Sá sem verður kjörinn varaformaður á fundinum um helgina situr út kjörtímabil fráfarandi varaformanns. Ein ályktunartillaga frá félögum í flokksstjórninni er komin fram fyrir fundinn. Hún felur í sér að flokkurinn skipi starfshóp til þess að útfæra tillögur að úrræðum sem hægt sé að beita áður en gripið skuli til frelsissviptingar og vistunar útlendinga í lokuðum brottfararbúðum sem fjallað var um í frumvarpi dómsmálaráðherra Viðreisnar sem varð að lögum í sumar. Flokksstjórnarfundurinn er haldinn í Suðurnesjabæ þar sem Samfylkingin var í meirihluta þar til um helgina. Þá slitnaði upp úr samstarfi flokksins við Sjálfstæðisflokksins vegna trúnaðarbrests. Heimildir fréttastofu hermdu að sá trúnaðarbrestur tengdist tilraun Haralds Helgasonar, annars manns á lista Sjálfstæðisflokksins, til þess að mynda nýjan meirihluta með fulltrúm Framsóknarflokksins og Miðflokksins.
Samfylkingin Suðurnesjabær Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Fleiri fréttir Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Sjá meira