Barnaspítalabindi Billy stal senunni Magnús Jochum Pálsson skrifar 6. október 2026 15:56 Billy Long klæddist eftirtektarverðu bindi þegar hann fylgdi Marco Rubio af landi brott fyrr í dag. Þeir sem hafa fylgst með Long vita að hann heldur mikið upp á bindið. Vísir/Anton/NAA William „Billy“ Long, sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi, var meðal þeirra sem tóku á móti Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, þegar hann lenti á Íslandi í gær og fylgdu honum af landi brott síðdegis í dag. Athygli vakti að sendiherrann klæddist enn einu sinni óvenjulegu og litríku bindi sem virðist vera í sérlegu uppáhaldi hjá honum og á sér fallega sögu.
Long tók við sem sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi í ágúst síðastliðnum en hafði fyrir það vakið athygli fyrir að lýsa því yfir að hann myndi gera Ísland að 52. ríki Bandaríkjanna, eftir að Kanada yrði 51. ríkið eins og Trump hafði ítrekað talað um, og að hann yrði sjálfur ríkisstjóri. Sjá einnig: Verðandi sendiherra grínaðist með að Ísland yrði 52. ríkið Ummælin vöktu hörð viðbrögð hérlendis sem endaði með því að Long baðst afsökunar og sagði ummælin hafa verið grín en „algjörlega óviðeigandi“. Í síðasta mánuði var Long síðan kallaður á fund Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra í kjölfar þess að Trump birti á samfélagsmiðlum sínum kort þar sem Ísland, Grænland og gervöll Norður-Ameríka voru máluð í bandarísku fánalitunum. Brýndi hún þar fyrir sendiherranum að kortið væri „með öllu óviðeigandi“. Sjá einnig: Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Áður en Long var skipaður sendiherra hérlendis var hann yfirmaður Ríkisskattstofu Bandaríkjanna í um tvo mánuði, frá júní til ágústs 2025. Fyrir það var Long fulltrúi Repúblikana í fulltrúadeild Bandaríkjaþings fyrir Missouri-ríki frá 2011 til 2023. Hann bauð sig fram til öldungadeildar þingsins árið 2022 en laut í lægra haldi fyrir Repúblikananum Eric Schmitt. Áður en hann dembdi sér út í pólitík starfaði Long hins vegar við uppboð og rak í rúm þrjátíu ár uppboðsfyrirtækið Billy Long Auctions. Bindið sem Long klæddist fyrr í dag kemur einmitt þar við sögu. Bindið er óvenjulegt fyrir þær sakir að það er skreytt með hinum ýmsu fánum heimsins ásamt teiknuðum andlitum af börnum af ólíkum þjóðernum. Þar má til dæmis sjá fána Kamerún og fyrir framan hann hörundsdökkan strák, asíska stúlku ofan á japanska og bandaríska fánanum og hvítan ljóshærðan strák ofan á þeim kanadíska. Billy Long, Marco Rubio og Þorgerður Katrín á Keflavíkurflugvelli fyrr í dag.Vísir/Anton Bindið virðist vera í sérlegu uppáhaldi hjá Long sem klæðist því reglulega og gerði það meðal annars á opinberri mynd sinni fyrir Ríkisskattstofuna. Bindið var upprunalega framleitt og selt af barnaspítalanum St. Jude Children's Research Hospital í Memphis til styrktar krabbameinsrannsóknum. Billy klæddist bindinu við stefnuræðu Donalds Trump á Bandaríkjaþingi þann 4. febrúar 2020 en það sem vakti helst athygli þá var að Nancy Pelosi, þáverandi forseti fulltrúadeildarinnar, reif ræðu forsetans eftir að hann hafði lokið við tölu sína. Long nýtti tækifærið hins vegar tækifærið til að láta Trump árita bindið og lýsti því yfir að hann ætlaði að láta bjóða það upp til að safna pening fyrir St. Jude-barnaspítalann. Sagði Long að fjársöfnun fyrir spítalann væri hans hjartans mál. „Yngsta dóttir okkar veiktist af krabbameini fyrir fimm árum síðan, Hodgkins-eitilfrumukrabbameini, svo við héldum að við myndum missa hana frá okkur. Hún fór í gegnum allar meðferðirnar, missti allt hárið og fékk það allt aftur og fór í gegnum allt ferlið, sem var þróað hjá St. Jude,“ sagði Long um söfnunina árið 2020. Donald og Billy á góðri stundu. „Þannig það er ástríða mín að hvenær sem við getum hjálpað krabbameinsrannsóknum eða hjálpað St. Jude-spítala að þá geri ég það,“ sagði hann jafnframt. Ekki nóg með að setja áritað bindið á uppboð þá reyndi Long líka að sannfæra Pelosi um að setja á uppboð ræðuna sem hún reif í sundur. Bindið er sérlega litríkt. „Áður en hún reif ræðuna var pappírinn virði fimmtán senta en eftir að hún reif hana, verandi uppboðshaldari, vissi ég að hún yrði mikils virði. Ég vissi að hún gæti verið þúsunda dala virði,“ sagði Long um ræðuna. „Ég gekk upp að henni og sagði: „Nancy, við verðum að selja þetta á uppboði.“ Hún sagði: „Hvað meinarðu?“ Ég sagði: „Við gætum selt þetta á uppboði fyrir gott málefni, hvaða málefni sem þú myndir velja myndi fá mikinn pening.“ Og hún sagði: „Nei, ég ætla að eiga það fyrir eigin vegsæld.“,“ sagði hann um samskipti sín við Pelosi. Long hafði þá þegar selt sams konar bindi áritað af Trump á uppboði árið áður og seldist það á 15 þúsund Bandaríkjadali (1,8 milljón króna). Long á greinilega gott safn af þessu skemmtilega bindi fyrst hann er búinn að selja tvö þeirra. Bindin eru ekki lengur til sölu á vefsíðu St Jude-barnaspítalans en ganga kaupum og sölum á Ebay þar sem þau eru fáanleg fyrir um níu til 22 Bandaríkjadali (sem eru á bilinu þúsund til þrjú þúsund íslenskar krónur). Það er því vel hægt að stela stílnum af Billy.
Bandaríkin Heimsókn Marco Rubio til Íslands Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Tíska og hönnun Krabbamein Tengdar fréttir Billy Long kominn á klakann Billy Long, sendiherra Bandaríkjanna hér á landi, tók formlega við embætti í dag þegar hann afhenti Höllu Tómasdóttur, forseta, trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Long vakti mikla athygli hér á landi þegar hann grínaðist í fyrra með það að ætla að gera Ísland að 52. ríki Bandaríkjanna, sem hann baðst svo afsökunar á. 10. ágúst 2026 17:57 „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra sagðist hafa fengið skýr svör á fundi sínum í morgun með Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, varðandi kortið sem Donald Trump Bandaríkjaforseti birti sem sýndi Ísland sveipað bandaríska fánanum. Hún sagði metnað Rubio liggja í að ýta undir viðveru NATO á norðurslóðum. 6. október 2026 14:26 Lofaði öllu fögru í von um sendiherraembættið Billy Long, sendiherraefni Bandaríkjaforseta á Íslandi, flutti í dag vitnisburð fyrir utanríkismálanefnd öldungadeildar Bandaríkjanna. Samþykki nefndin tilnefninguna er Long einu skrefi nær embætti sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi. 12. febrúar 2026 18:34 Mest lesið Kristrún valdi Victoriu Beckham Tíska og hönnun „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Tónlist Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Lífið Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Lífið Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Lífið Hvað veistu um... íslenska hönnun? Lífið Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Lífið Barnaspítalabindi Billy stal senunni Tíska og hönnun Funheit í fimm ára afmæli Lífið Gellustælar og íslenskar listagyðjur í París Tíska og hönnun Fleiri fréttir Barnaspítalabindi Billy stal senunni Gellustælar og íslenskar listagyðjur í París Kristrún valdi Victoriu Beckham Fundu hvora aðra í prjónaskapnum Fékk innblástur fyrir Bleiku slaufunni í eigin meðferð Staðráðnar í að koma sterkari til baka Minningar um mömmu það allra verðmætasta Sól sló í gegn á tískuviku í London Fjögurra ára fyrirsætusonur stal senunni Óttinn við að vera of venjuleg drifkrafturinn Flippuðust og fáklæddust á Emmy-hátíðinni Tískan við þingsetningu: Sólgleraugu, haustlitir og Sigmundur Ernir stal senunni Lúpína verði fyrsta stopp fyrir veisluna eða afmælið Allir og amma þeirra mættu í þjóðbúningi Tilgangslaust að rakka niður klæðaburð fólks Sjá meira
Billy Long kominn á klakann Billy Long, sendiherra Bandaríkjanna hér á landi, tók formlega við embætti í dag þegar hann afhenti Höllu Tómasdóttur, forseta, trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Long vakti mikla athygli hér á landi þegar hann grínaðist í fyrra með það að ætla að gera Ísland að 52. ríki Bandaríkjanna, sem hann baðst svo afsökunar á. 10. ágúst 2026 17:57
„Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra sagðist hafa fengið skýr svör á fundi sínum í morgun með Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, varðandi kortið sem Donald Trump Bandaríkjaforseti birti sem sýndi Ísland sveipað bandaríska fánanum. Hún sagði metnað Rubio liggja í að ýta undir viðveru NATO á norðurslóðum. 6. október 2026 14:26
Lofaði öllu fögru í von um sendiherraembættið Billy Long, sendiherraefni Bandaríkjaforseta á Íslandi, flutti í dag vitnisburð fyrir utanríkismálanefnd öldungadeildar Bandaríkjanna. Samþykki nefndin tilnefninguna er Long einu skrefi nær embætti sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi. 12. febrúar 2026 18:34