Handbolti

„Náðum ekki að klukka þá framan af“

Hjörvar Ólafsson skrifar
Aron Pálmarsson var ánægður með svarið sem hann fékk í seinni hálfleik. 
Aron Pálmarsson var ánægður með svarið sem hann fékk í seinni hálfleik.  Vísir/Anton

Aron Pálmarsson, þjálfari FH, segir að leikmenn sínir hafi fengið dýrmæta lexíu þegar franska liðið Limoges tók þá í kennslustund í fyrri hálfleik í leik liðanna í Evrópudeild EHF í handbolta karla í Kaplakrika í kvöld. 

„Við áttum í miklum erfiðleikum í fyrri hálfleik og náðum lítið sem ekkert að klukka þá. Mér fannst við ber helst til mikla virðingu fyrir þeim og varnarleikurinn var langt í frá nógu góður,“ sagði Aron Pálmarsson, þjálfari FH, að leik loknum.

„Það var ekki mikið farið yfir taktík í hálfleik og einna helst farið yfir ákefð og grimmd á varnarhelmingnum. Varnarleikurinn batnaði í seinni hálfleik og Jón Þórarinn varði vel,“ sagði Aron enn fremur.

„Þetta er öflugt lið sem við vorum að mæta og þeir voru líkamlega sterkari en við, teknískari og taktískt klókari. Við getum dregið mikinn lærdóm af þessum leik og það er gott fyrir okkur að sjá hvað við þurfum að bæta svart á hvítu,“ sagði hann.

„Svona beint eftir leik er fátt handboltalegt jákvætt sem við getum tekið út úr þessum leik. Jón Bjarni var góður í sóknarfasanum, við náðum að ganga betur út í þa í seinni hálfleik og markvarslan hjá Jóni Þórarni er svona það helsta. 

Nú förum við svo að greina það hvað betur mátti fara og stefnum að því að bæta okkur dag frá degi,“ sagði Aron aðspurður um hvað hann tæki jákvætt út úr þessu verkefni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×