Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Birgir Olgeirsson skrifar 7. október 2026 13:58 Sverrir Bergmann, tónlistarmaður og varaþingmaður Samfylkingarinnar, hvatti stjórnmálaflokka til að afla nauðsynlegra leyfa fyrir notkun tónlistar í pólitísku kynningarefni. Vísir/Vilhelm Notkun þekktra laga eða radda flytjenda í pólitískum áróðri getur gefið almenningi til kynna að listamaður styðji viðkomandi málstað. Þetta sagði Sverrir Bergmann Magnússon á Alþingi í dag og hvatti stjórnmálaflokka og þingmenn til að tryggja nauðsynleg leyfi áður en kynningarefni er birt.
Sverrir er einn þekktasti tónlistarmaður landsins og situr á þingi fyrir Samfylkinguna í Suðurkjördæmi. Hann tók sæti sem varaþingmaður fyrir Víði Reynisson á mánudag, samkvæmt tilkynningu Alþingis frá 2. október. Í ræðunni vakti hann athygli á notkun tónlistar til að styðja pólitísk skilaboð í aðdraganda nýafstaðinnar þjóðaratkvæðagreiðslu. „Var aflað tilskilinna leyfa? Var rætt við höfunda og eigendur upptakna? Eða var gengið út frá því að tónlist á samfélagsmiðlum mætti nota að vild?“ Hann tilgreindi ekki hvaða lög eða kynningarefni hann átti við. Lag í símanum jafngildir ekki leyfi Sverrir vísaði til leiðbeininga STEFs og sagði að gera þyrfti greinarmun á réttinum að laginu sjálfu og réttinum að upptökunni. Leyfi til að nota lag fæli ekki sjálfkrafa í sér leyfi til að nota ákveðna upptöku þess. „Að hægt sé að velja lag í snjallsíma staðfestir ekki að nota megi það í kostaðri auglýsingu.“ Sverrir sagði tónlist vekja tilfinningar, byggja upp stemningu og gefa pólitískum skilaboðum aukinn kraft. Því þyrfti að huga að því hvernig notkun hennar tengdi höfunda og flytjendur við pólitíska baráttu. „Við eigum að virða það að fólk ráði sjálft hvort og hvernig það tengist pólitískri baráttu.“ Hann lagði jafnframt áherslu á að virðing fyrir vinnu höfunda og flytjenda þyrfti að birtast í greiðslum. „Margir í skapandi greinum eiga erfitt með að lifa af störfum sínum, jafnvel þó að framlag þeirra til íslenskrar tungu og menningar sé mikið.“ Hvetur til sameiginlegra leiðbeininga Sverrir hvatti stjórnmálaflokka til að móta sameiginlegar leiðbeiningar með STEFi og fulltrúum flytjenda um leyfisöflun og greiðslur fyrir notkun tónlistar. Hann skoraði einnig á menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið að flýta innleiðingu svonefndrar DSM-tilskipunar. Þar er átt við höfundarréttartilskipun Evrópusambandsins frá 2019. DSM stendur fyrir Digital Single Market, eða stafrænan innri markað. Samkvæmt umfjöllun Stjórnarráðsins um tilskipunina felur hún meðal annars í sér ákvæði sem eiga að tryggja höfundum og flytjendum sanngjarnar greiðslur í útgáfusamningum. Hún fjallar einnig um skyldur fyrirtækja á borð við Facebook gagnvart rétthöfum þegar notendur deila verkum þeirra á netinu. „Við sem setjum öðrum reglur eigum að ganga á undan með góðu fordæmi. Virðing fyrir íslenskri menningu verður að sjást í því hvernig við komum fram við fólkið sem skapar hana.“
Tónlist Alþingi Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Fleiri fréttir Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða til tíðinda Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Sjá meira