Sport

Bakgarðsáskorunin: Pissustaðurinn reyndist vera beint fyrir framan mynda­vélina

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Sölvi segist vera mjög duglegur í að elda einhæfan mat.
Sölvi segist vera mjög duglegur í að elda einhæfan mat.

Vísir stendur fyrir Bakgarðsáskoruninni þar sem lesendum gefst tækifæri á að kynnast landsliðsfólki í Bakgarðshlaupi. Sölvi Snær Egilsson er einn hlauparanna.

Sölvi Snær er 23 ára landsliðsmaður í Bakgarðshlaupi. Hann tekur þátt í landsliðakeppninni sem fer fram þann 17. október. Sölvi Snær hefur mest farið 35 hringi en hlaupið gengur út á að hlaupa 6,7 kílómetra á klukkustund, eins oft og hægt er.

Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi hefst 17. október og verður í beinni útsendingu á Vísi.

Hvenær byrjaðir þú að hlaupa?

Ég tók þátt í fyrsta hlaupinu mínu 2019 en byrjaði að æfa hlaup í kring um 2021

Af hverju ákvaðst þú að taka þátt í Bakgarðshlaupinu?

Hvað hefur þú tekið oft þátt? Ég ákvað að taka þátt í bakgarðshlaupina af því það var spennandi áskorun og mig langaði að hlaupa 100km. Ég hef 8 sinnum tekið þátt

Hvern er best að spjalla við í hringnum?

Að sjálfsögðu er það Tommi litli

Hvað er best að borða þegar þú tekur þátt í Bakgarðinum?

Corny

Hvaða liðsmaður er með besta nestið?

Mig minnir að Adam og Sylwester hafi einhverntíman verið að brugga eitthvað girnilegt á rafmagnshellu sem þeir komu með. Kannski fæ ég að smakka hjá þeim í þetta skiptið.

Sportmyndir/Gummi stóri

Hvað gerir þú þegar þú ert ekki að hlaupa?

Eins og staðan er núna er ég atvinnulaus en ég er mjög duglegur að þrífa heimilið og elda einhæfan mat

Hvað ætlar þú þér að fara marga hringi í október?

Eins marga og ég get

Hvað er það vandræðalegasta sem þú hefur lent í í Bakgarðshlaupinu?

Það er ekkert þannig vandræðalegt sem mér dettur í hug nema kannski þegar ég var með pissustað í hringnum þar sem ég pissaði í hverjum hring og komst svo að því að þetta var beint fyrir framan myndavél sem Vísir hafði sett upp fyrir útsendinguna

Hver er uppáhalds Bakgarðsbrautin þín og af hverju?

Heiðmörkin er í miklu uppáhaldi þar sem náttúran er skemmtileg og ég náði mínum besta árangri þar

Hvaða liðsmaður kemur mest á óvart í hlaupinu?

Þetta er mjög sterkur hópur en ég held að Gunnar Lárus eigi eftir að ógna með hraða sínum og krafti

Karítas Guðjónsdóttir

Hver er þinn stærsti styrkleiki í Bakgarðshlaupi? En veikleiki?

Helsti styrkleiki er að ég er duglegur að næra mig og fæ sjaldan í magann á hlaupum. Helsti veikleiki er að ég er að ég neyti ekki koffíns og er því smeykur við að nota það í keppninni

Hvað er það skrítnasta sem þú hefur gert til að halda þér gangandi í hlaupi?

Borða lifrarpylsu milli hringja

Hver er duglegastur í liðinu við að hvetja aðra áfram?

Mari

Ef þú mættir bara hlusta á eitt lag allan tímann, hvaða lag væri það?

Asche zu Asche með Rammstein

Hvernig myndir þú lýsa þér fyrir einhverjum sem þekkir þig ekki?

Gleðigjafi sem er að verða gráhærður

Hvað er best að gera eftir Bakgarðshlaup?

Heim að sofa og fara svo í súrefnis og rauðljósa meðferð í Greenfit, mögulega koma við á Just Wingin it

Hver er líklegastur til að byrja að syngja á hlaupum?

Hildur

Ef þú ættir að lýsa liðinu með þremur orðum, hvaða orð myndirðu velja?

Gleði Virðing Metnaður




Fleiri fréttir

Sjá meira


×