Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Magnús Jochum Pálsson skrifar 9. október 2026 15:23 Andrea Róbertsdóttir og Jón Þór Eyþórsson hafa sett einbýlishús sitt að Dalsbyggð á sölu, aðeins tveimur árum eftir að þau keyptu það. Betri stofan Andrea Róbertsdóttir, formaður FKA, og Jón Þór Eyþórsson hafa sett einbýlishús sitt að Dalsbyggð í Garðabæ á sölu. Eignin telur alls 242 fermetra og er ásett verð 219,5 milljónir króna.
Húsið er teiknað af Kjartani Sveinssyni, var byggt árið 1978 og hefur verið endurnýjað mikið á síðustu sex árum. Húsið er 242 fermetrar á þremur pöllum, þar af telur bílskúrinn fimmtíu fermetra. Andrea og Jón keyptu húsið árið 2024 á 141 milljón eftir að hafa selt einbýlishús sitt að Tjarnarflöt í Garðabænum. Þau hafa endurnýjað húsið töluvert síðan þá og vilja tæpum áttatíu milljónum meira fyrir það en þau greiddu. Húsið skiptist í miðpall, efsta pall og neðsta pall. Gengið er inn á miðpall í anddyri með fataskápum og gestasnyrtingu. Þaðan er komið inn í forstofu með góðri lofthæð og rennihurð út í garð með timburverönd. Á vinstri hönd er svefnálma með þremur svefnherbergjum, þar af einu hjónaherbergi með fataherbergi, og nýstandsettu baðherbergi. Frá forstofunni er gengið út á verönd. Úr forstofu er gengið upp nokkrar tröppur á efsta pall þar sem er borðstofa, eldhús og glæsileg arinstofa með útgengt á góðar svalir. Eldhúsið er með stóra innréttingu með steinborðplötum og nýjum tækjum, þar á meðal uppþvottavél og tvöföldum ísskáp. Á neðsta palli er þvottahús með sturtu sem og bílskúr þar sem helmingurinn er nú tveggja herbergja einstaklingsíbúð. Hinn helmingur bílskúrsins er með innkeyrsluhurð með rafmagnshurðaopnara. Inn af bílskúr er þrjátíu fermetra óskráð rými sem er ekki með fulla lofthæð. Í stofunni er arinn. Fyrir utan húsið er stórt upphitað bílaplan sem rúmar auðveldlega þrjá bíla. Gróinn garður er allan hringinn með steyptum kanti við götu. Lóðin er 884 fermetrar og húsið staðsett í grónu og barnvænu hverfi þar sem er stutt í skóla, íþróttasvæði og aðra þjónustu. Nánar má lesa um eignina á fasteignavef Vísis og hér að neðan eru myndir af húsinu: Frá anddyrinu er gengið inn í þessa forstofu. Eldhúsið er samtengt borðstofu. Stofan er rúmgóð og björt með háa lofthæð. Gengið er út á svalir frá stofunni.
Fasteignamarkaður Garðabær Mest lesið Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Lífið Opinbera haustrómantík á Spáni Lífið Digger grefur sína eigin gröf Gagnrýni Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira Lífið Ástarbréf til íslenskra költmynda Tónlist Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Lífið Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Lífið Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Lífið Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Lífið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið Fleiri fréttir Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira „Ætli við endum ekki í einhvers konar fráhvörfum“ Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Opinbera haustrómantík á Spáni Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Sjá meira