Innlent

Höfuð­paur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Andri Már og Ingunn Rut huldu andlit sín við komuna í Héraðsdóm Suðurlands á fyrsta degi aðalmeðferðarinnar.
Andri Már og Ingunn Rut huldu andlit sín við komuna í Héraðsdóm Suðurlands á fyrsta degi aðalmeðferðarinnar. Vísir/Anton Brink

Andri Már Mortenssen Birgisson var dæmdur í átta ára fangelsi fyrir aðkomu sína að Reykholtsmálinu svokallaða. Dómur var kveðinn upp yfir honum og fimm öðrum en þeim var gefið að sök að hafa frelsissvipt, fjárkúgað og beitt maltneskan mann stórfelldu ofbeldi í Reykholti.

Dómurinn var kveðinn upp klukkan þrjú í Héraðsdómi Suðurlands sem er á Selfossi.

Sjá nánar: Fjárkúgun í Reykholti

Ingunn Rut Sigurðardóttir, ein ákærðra og barnsmóðir Andra Más, hlaut þriggja ára dóm en hún játaði að hluta til sök við aðalmeðferð málsins. Sigurður Gunnar Ásgeirsson, faðir Ingunnar, neitaði sök og hlaut tveggja og hálfs árs dóm.

Þá var Pétur Már Mortensen Birgisson, bróðir Andra, einnig meðal ákærðra. Héraðssaksóknari fór fram á fjögurra til sex ára fangelsisvist yfir honum og var hann dæmdur í þriggja ára fangelsisvist. 

Loks voru Halldór Logi Sigurðsson og Níels Pálmar Benediktsson einnig meðal ákærður. Farið var fram á fjögur til sex ár yfir Níelsi en hann var dæmdur í eins árs fangelsi. Halldór Logi var dæmdur í sex mánaða fangelsisvist en héraðssaksóknari fór fram á þriggja til fimm ára fangelsi. 

Dómurinn sjálfur hefur ekki verið birtur en í ákærunni er Andra, Halldóri og Níelsi gefið að sök að hafa ráðist inn á heimili brotaþola á föstudagskvöldi og beitt hann ofbeldi. Markmið þeirra hafi verið að fá brotaþola til að gefa upp rafræn skilríki. Við aðalmeðferðina sagði Halldór Logi að hann hefði yfirgefið hópinn í Mosfellsbæ og aldrei farið upp í Reykholt.

Brotaþoli leigði íbúð hjá Sigurði og kom fram við aðalmeðferðina að Sigurður teldi hann skulda sér pening fyrir leigunni. Andri hafi því ætlað að fá brotaþola til að greiða leigutekjurnar.

Sigurður, Ingunn og Pétur eiga einnig, samkvæmt ákærunni, að hafa tekið þátt í ofbeldinu, til að mynda slegið hann með hnúajárni og hótað með keðjusög. Andri hafi síðan millifært tæpar átján milljónir króna af reikningi brotaþola á reikninga í eigu Sigurðar, Andra, Ingunnar og Péturs.

Þeim er loks gefið að sök að hafa fylgt brotaþola upp á Keflavíkurflugvöll og skipað honum að fara til Möltu annars myndi dóttir hans hljóta skaða.


Tengdar fréttir

Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna

Lögreglumaður sem handtók Andra Má Mortensen Birgisson, sakborning í Reykholtsmálinu, segir að hann hafi verið yfirvegaður þegar hann var handtekinn vegna Reykholtsmálsins. Vitnaleiðslur aðalmeðferðarinnar héldu áfram í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×