Útilegumaðurinn býður nú meira en ferðavagna og útivistarbúnað Útilegumaðurinn 16. október 2026 12:17 „Hvort sem það er sumar, vetur, vor eða haust er alltaf jafn gaman að fá fólk í heimsókn. Kaffið er á könnunni og allir velkomnir!,“ segir Hrafnhildur Harðardóttir, markaðsstjóri Útilegumannsins. Ferðalög um Ísland hafa lengi skipað stóran sess hjá landsmönnum og fátt bendir til þess að áhuginn sé á undanhaldi. Þvert á móti segir Hrafnhildur Harðardóttir, markaðsstjóri Útilegumannsins, hóp þeirra sem ferðast um landið með tjaldvagna, fellihýsi, hjólhýsi og húsbíla sífellt verða stærri og fjölbreyttari. „
Það hefur líklega sjaldan verið eins mikið að gera og á COVID-tímanum, en þá varð gríðarleg aukning í sölu á öllum tegundum ferðavagna,“ segir Hrafnhildur. „Þórður sölustjóri hefur unnið við þetta í 23 ár og hefur aldrei upplifað annað eins. Núna er þetta orðið jafnara og stöðugra en hópurinn sem ferðast með þessum hætti heldur áfram að stækka.“ Hún segir áberandi hversu margt ungt fólk velji að skipta tiltölulega fljótt úr hefðbundnu tjaldi yfir í annars konar ferðabúnað. „Stór hópur ungs fólks fer nánast beint í að kaupa sér tjaldvagn, fellihýsi eða hjólhýsi. Á sama tíma heldur eldra fólk heilsu og hreysti lengur og getur því ferðast lengur en áður. Þannig stækkar hópurinn í raun úr báðum áttum.“ Hjólhýsið fylgir kylfunum Notkun ferðavagna verður líka sífellt fjölbreyttari. Hrafnhildur nefnir sem dæmi að sumir nýti hjólhýsin til að ferðast á milli golfvalla landsins. „Við sjáum fólk sem kaupir sér hjólhýsi og tekur það með sér í golfferðir um landið. Þá þarf ekki að reiða sig á hótelgistingu heldur er gististaðurinn einfaldlega með í för.“ Hún segir Ísland búa yfir fjölbreyttu landslagi þar sem margt spennandi sé að skoða. Íslendingar fái seint leið á að elta veðrið og ferðast um landið enda sé alltaf eitthvað nýtt að sjá. „Þegar fólk fer í útilegu er það í fríi frá heimilinu, heimilisverkum og hefðbundnu viðhaldi. Þá gefst meiri tími til samveru með fjölskyldu og vinum, sem er ein ástæða þess að þessi hópur fer stækkandi ár frá ári.“ Útilegumaðurinn hóf jafnframt innflutning á húsbílum á síðasta ári og segir Hrafnhildur viðtökurnar hafa verið vonum framar. Húsbílar séu orðnir mikilvægari hluti af framboðinu og vinsældir þeirra fari vaxandi. Útilegumaðurinn á sér langa sögu en fyrirtækið opnaði fyrst ferða- og útivistarverslun við Fossháls árið 2007. Eftir viðkomu á Korputorgi flutti fyrirtækið árið 2018 í núverandi húsnæði við Bugðufljót 7 í Mosfellsbæ. Allt frá bakklóru upp í hjólhýsi Hrafnhildur segir aðstöðuna í Mosfellsbæ hafa reynst fyrirtækinu einstaklega vel. Þar sé rúmt um bæði viðskiptavini og farartæki og auðvelt að koma með hjólhýsi eða annan ferðavagn í eftirdragi. „Við erum á frábærum stað. Hér er nóg pláss fyrir hjólhýsin og fólk getur auðveldlega komið til okkar með vagninn aftan í bílnum. Húsnæðið er bjart og hátt til lofts og okkur líður mjög vel hér.“ Í sama húsnæði er verkstæði auk stórrar verslunar þar sem úrvalið nær langt út fyrir ferðavagnana sjálfa. „Það getur verið mjög gaman að koma til okkar. Hér er góð stemning og úrvalið mikið. Þú getur nánast fengið allt frá bakklóru og veiðistöng upp í handklæði og garðhúsgögn. Við erum líka með mikið úrval smávara fyrir heimilið og varahluti í ferðavagna.“ Útilegumaðurinn er meðal annars umboðsaðili fyrir þekkt vörumerki á borð við Knaus, Weinsberg, Tabbert, T@B, LMC og Dethleffs, auk Combi-Camp-tjaldvagnanna. „Nýjung hjá okkur eru Campwerk Offroad-tjaldvagnarnir, sem hafa reynst einstaklega vel við íslenskar aðstæður, sérstaklega á hálendinu þar sem reynir á búnaðinn. Þeir eru frábær kostur fyrir þá sem vilja ferðast út fyrir alfaraleiðir og njóta íslenskrar náttúru.“ Combi-Camp „Combi-Camp hefur lengi verið einn vinsælasti fjölskyldutjaldvagninn á Íslandi og á sér mikla sögu hér á landi. Við erum svo heppin að eiga einn slíkan frá árinu 1979 sem stendur í sýningarsalnum okkar. Ég mæli eindregið með því að fólk komi við og kíki á þennan gamla og skemmtilega tjaldvagn.“ T@B 400 „T@B 400, sem við köllum gjarnan Dropann, hefur líka alltaf verið mjög vinsæll hjá okkur. Hann er einstaklega skemmtilegur í útliti og hefur mikla sérstöðu. Lögunin minnir á dropa og straumlínulagað formið hjálpar til við að minnka loftmótstöðu. Hann hentar líka vel þeim sem vilja komast aðeins lengra og ferðast á staði þar sem stærri hjólhýsi eiga erfiðara með að komast.“ T@B 400 hefur lengi notið vinsælda enda einstaklega skemmtilegur í útliti og hefur mikla sérstöðu. Knaus „Knaus hefur verið langvinsælasta merkið okkar í gegnum tíðina. Það sem er sérstaklega skemmtilegt er að sífellt fleiri viðskiptavinir koma til okkar eftir að hafa séð Knaus-hjólhýsi á tjaldsvæðum landsins. Það segir okkur að vagnarnir vekja athygli og tala svolítið fyrir sig sjálfir!“ Knaus Nordwind „Á næsta ári eigum við svo von á spennandi nýjung, Knaus Nordwind, sem verður enn glæsilegri og íburðarmeiri vagn en við höfum áður verið með. Við hlökkum ótrúlega mikið til að frumsýna hann og leyfa fólki að sjá hvað hann hefur upp á að bjóða.“ Uppblásin tjöld njóta meiri vinsælda Hrafnhildur segir árið 2027 eiga eftir að verða mjög spennandi hjá Útilegumanninum. „Við ætlum að halda áfram að þróa vöruúrvalið okkar og höfum meðal annars ákveðið að leggja enn meiri áherslu á húsbíla og fjölga framboði þeirra hjá okkur. Það er því sannarlega margt spennandi fram undan og við hlökkum til að sýna ykkur allar nýjungarnar.“ Uppblásin tjöld njóta einnig sífellt meiri vinsælda meðal viðskiptavina Útilegumannsins. „Það eru svo margir fallegir staðir á Íslandi sem ekki er hægt að komast á með hjólhýsi eða öðrum ferðavögnum. Þess vegna velja sífellt fleiri uppblásin tjöld. Þau eru einstaklega einföld og fljótleg í uppsetningu, rúmgóð og henta vel fyrir alla fjölskylduna. Þau gefa fólki líka meira frelsi til að ferðast og njóta náttúrunnar á stöðum sem annars væri erfitt að komast á með stærri ferðabúnað.“ Bílarnir næsta skref Nú hefur Útilegumaðurinn bætt nýjum þætti við starfsemi sína en í fyrsta sinn býður fyrirtækið upp á umboðssölu bíla yfir vetrartímann. „Plássið okkar og staðsetningin bjóða upp á mjög góða möguleika til bílasölu og okkur fannst því spennandi að prófa þetta. Þetta er í fyrsta skipti sem við förum þessa leið og það eru spennandi tímar fram undan hjá okkur.“ Í tilefni af nýju þjónustunni býður Útilegumaðurinn 25 prósenta afslátt af sölulaunum til 1. nóvember. Þrátt fyrir að starfsemin hafi tekið breytingum í gegnum árin segir Hrafnhildur eina áherslu hafa haldist óbreytta: að veita góða þjónustu og sjá til þess að viðskiptavinum líði vel þegar þeir koma í heimsókn. „Góð þjónusta og þjónustulund hafa alltaf verið í fyrirrúmi hjá okkur. Við reynum að skapa góða stemningu og gera okkar allra besta til að veita framúrskarandi þjónustu.“ Og svo má auðvitað ekki gleyma því að Útilegumaðurinn er ekki bara staður til að versla. „Það er alltaf notalegt þegar fólk stoppar hjá okkur á leiðinni út úr bænum, fær sér kaffibolla og kex og spjallar aðeins um ferðalögin, lífið og tilveruna áður en haldið er af stað. Hvort sem það er sumar, vetur, vor eða haust er alltaf jafn gaman að fá fólk í heimsókn. Kaffið er á könnunni og allir velkomnir!“
Ferðalög Mest lesið Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Lífið Hætta við sýningu á The Social Reckoning á Íslandi Bíó og sjónvarp Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Lífið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Lífið „Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa tilfinningar“ Tónlist „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Lífið Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Lífið Hleypur í skarðið vegna persónulegra mála Reeves Bíó og sjónvarp Siggi Chaplin allur Lífið Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Lífið Fleiri fréttir Árlega greinast 2.146 einstaklingar: Svona nýtist þinn stuðningur Útilegumaðurinn býður nú meira en ferðavagna og útivistarbúnað Boney M og Herbert Guðmundsson stíga saman á svið á öðruvísi jólatónleikum Svansvottaðar gæðaíbúðir þar sem hugsað er fyrir hverju smáatriði Er bíllinn klár fyrir veturinn? Kíktu á vetrartékklista Bílanausts Nathan fagnaði tímamótum með stærsta viðburði í sögu félagsins Tryggðu þér nýtt rafhjól fyrir 2027 á hagstæðari kjörum Rafha fagnar 90 árum með pönnukökum, afmælistilboðum og fjöri Smáralind breytist í tímavél um helgina Tennis, tónlist og samfélag: Happdrætti Blindrafélagsins skiptir máli Siglingar, safarí og suðrænar strendur meðal spennandi sérferða Húsgagnadagar hafnir í JYSK með allt að 40% afslætti Svona getur lyfjaskammtarinn einfaldað daglegt líf Sprenging í sölu saltvatnspotta á Íslandi Kona fagnar tólf árum í nýjum og glæsilegum Firði Mæðgurnar á bak við Kalkliti mæta í Skútuvog Húðin breytist með aldrinum: Hagkaup leggur aukna áherslu á fræðslu „Það er sannarlega óþarfi að mygla inni“ Nýsköpun frá Icewear fyrir íslenskt veðurfar Sótti kvittunina í ruslið og vann draumaferð til Ástralíu Mikil þátttaka í Íslandsmóti fyrirtækja í Kviss Aldur er ekki hindrun heldur nýtt skeið í lífinu „Ég hef svo margar spurningar fyrir Georg Bjarnfreðarson!“ Tíu algeng mistök í daglegri hárumhirðu „Nú skaltu bara fara í pottinn, Pottakóngur!“ Systur skapa heilsusamfélag fyrir konur á öllum æviskeiðum Próteinskammtur alltaf með í töskunni Þrjátíu árum fagnað með fullu húsi og mikilli matarveislu Prjónaæði grípur um sig meðal Íslendinga Hátt í þúsund manns mættu í matar- og vínveislu Innnes Sjá meira