Innlent

Hvetur nöfnu sína til að prófa að fletta Gest­gjafanum

Freyja Þórisdóttir skrifar
Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir ritstjóri Gestgjafans segir formann Blaðamannafélags Íslands ekki nógu vel að sér þegar komi að innihaldi Gestgjafans enda sér þar að finna margt annað en uppskriftir.
Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir ritstjóri Gestgjafans segir formann Blaðamannafélags Íslands ekki nógu vel að sér þegar komi að innihaldi Gestgjafans enda sér þar að finna margt annað en uppskriftir. Vísir/Anton Brink

Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir ritstjóri Gestgjafans gefur heldur lítið fyrir ummæli nöfnu sinnar Sigríðar Daggar Auðunsdóttur formanns Blaðamannafélags Íslands í nýlegu viðtali þar sem hún minntist á blaðið. Í innsendri grein sem ber fyrirsögnina „Áhrifavaldar já, Gestgjafinn nei“ segist Sigríður Dagný ekki átta sig á því hvaða mælikvarða formaðurinn noti þegar hún raði eigin félagsmönnum í flokka. 

Tilefni innsendu greinarinnar er viðtal þar sem rætt var við formann Blaðamannafélags Íslands í einum þátta blaðamannsins Jakobs Bjarnars á Vísi sem bera heitið Í bóli Bjarnars en þeir birtust þann 4. október. Sigríður Dagný segist hafa staldrað þar við ummæli formannsins.

Mestmegnis miðlun á uppskriftum

„Hlaðvörp eru bara fjölmiðlunarleið, miðlunarleið, það er fjölmiðill. Alveg eins og Gestgjafinn, tökum sem dæmi, miðlar uppskriftum. Jú, jú, þar eru einhverjar greinar sem blaðamenn vinna en mestmegnis er þetta miðlun á uppskriftum. Við höfum aldrei dregið í efa að Gestgjafinn sé fjölmiðill. Ef Gestgjafinn væri með hlaðvarp sem myndi fjalla um uppskriftir, væri það þá ekki fjölmiðill?“

Það er önnur setningin í efnisgreininni sem skýtur skökku við að mati Sigríðar Dagnýjar. Í grein sinni minnist hún á það að í viðtalinu hafi formaðurinn sagt fréttamennsku vera eina tegund af blaðamennsku. Meðal þeirra sem hún teldi til blaðamennsku væri fjöldi áhrifavalda.

„Áhrifavaldur getur sem sagt verið blaðamaður. Blaðamaður á ritstjórn Gestgjafans, sem greiðir félagsgjöld til BÍ og starfar eftir siðareglum félagsins, skrifar hins vegar „einhverjar greinar“ innan um uppskriftir,“ skrifar Sigríður Dagný.

Hún átti sig ekki á því hvaða mælikvarða formaðurinn noti. Þeir sem skrifi til að mynda um stýrivexti virðist efstir í flokki en þeir sem skrifi um mat í öðrum.

„Hvar lenda þá íþróttafréttamenn, menningarblaðamenn eða þeir sem skrifa um heilsu og ferðalög? Stéttarfélag á að standa með öllum sínum félagsmönnum, ekki raða þeim upp eftir því hversu merkilegt viðfangsefnið þykir,“ skrifar hún jafnframt.

Ekki skrítið að nefndin geri eins

Tímasetningin sé ekki til að bæta úr skák: Úthlutunarnefnd stuðnings við einkarekna fjölmiðla hafi í frummati komist að því að efni Vikunnar og Húsa og híbýla, systurblaða Gestgjafans, teljist ekki til frétta.

„Formaðurinn segir sjálf í viðtalinu að héraðsmiðlar „sem stunda alvöru blaðamennsku“ þurfi stuðning og að gerð sé krafa til þess,“ skrifar Sigríður Dagný.

Þegar formaður blaðamanna talar um alvöru blaðamennsku og gerir lítið úr tímaritunum er ekki skrýtið að nefndin dragi sömu línu.

Hún hvetur þá formann til þess að fletta blaðinu, þar sé að finna viðtöl við matreiðslumenn, bændur og framleiðendur, umfjöllun um veitingastaði og fólkið sem reki þá, um nýsköpun í matargerð, ræktun, matarmenningu og ferðalög.

„Þegar Morgunblaðið eða Vísir skrifa um mat og landbúnað kallast það blaðamennska,“ skrifar hún og ítrekar: „Ég sé ekki af hverju það breytist þegar sérhæft tímarit gerir það betur.“

Ummælin sýni að hennar mati lítinn skilning á því að fjölmiðlar séu reknir, einkareknir fjölmiðlar lifi á áskrifendum og auglýsingum. Hún nefnir að vissulega hafi formaðurinn rétt fyrir sér varðandi það að blaðamennska sé ekki ókeypis.

Viðtal Jakobs við Sigríði Dögg er að finna í spilaranum hér fyrir ofan.

Ekki rétt að skráning sé frí

Þá tekur hún sem dæmi að formaðurinn hafi sagt það mistök hjá Sýn að leggja kvöldfréttir niður og að gildi fréttanna verði ekki metið í „einhverjum debet- og kreditdálkum“.

„Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki. Þegar fréttatími stendur ekki undir sér þarf eitthvað annað að borga fyrir hann, og hjá einkareknum miðlum er það efnið sem fólk sækir í og auglýsendur vilja vera nálægt,“ segir Sigríður Dagný og snýr sér því næst að kostnaðinum sem fylgi því að skrá sig sem fjölmiðla.

Formaður hafði sagt í viðtalinu að fréttahlaðvörp væru mjög góð viðbót inn á svið blaðamennsku en að hún skildi ekki af hverju fólk flækti það svona að skrá hlaðvörp sem fjölmiðla og að „það kostar ekki einu sinni neitt að skrá sig sem fjölmiðil.“

Þarna er nafna hennar ósammála og segir einfaldlega að staðhæfingin sé ekki rétt.

„Skráningu fylgja skyldur samkvæmt fjölmiðlalögum: að tilkynna ábyrgðarmann, eignarhald og ritstjórnarstefnu, tilkynna sölu á hlut innan tveggja virkra daga, skila árlegri skýrslu til fjölmiðlanefndar, setja reglur um ritstjórnarlegt sjálfstæði og svara fyrirspurnum nefndarinnar,“ skrifar hún.

Við hjá Birtíngi gerum þetta ár eftir ár. 

Loks segist hún sammála formanninum er hún segir nefndina hafa farið út fyrir sitt verksvið þegar hún hafi farið að meta hvernig fjölmiðlar fjalli um mál. Hún hafi líka sagt að það sem skipti mestu máli sé tilgangurinn með því sem miðlað er og að unnið sé eftir siðareglum.

„Blaðamannafélagið berst fyrir öflugri fjölmiðlun, segir formaðurinn. Það gerum við líka. Öflug fjölmiðlun er fjölbreytt og blaðamennirnir sem skrifa um mat, hönnun og mannlíf eiga heima í þeirri baráttu. Ég vona að félagið þeirra standi með þeim.“


Tengdar fréttir

Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki

Birtíngur hefur krafist þess að úthlutunarnefnd um stuðning við einkarekna fjölmiðla endurskoði frummmat sitt eftir að nefndin komst að þeirri niðurstöðu að útgáfufélagið uppfylli ekki skilyrði fyrir rekstrarstuðningi vegna ársins 2025. Vísað er til þess að efni sem birt er í Vikunni og Húsum og híbýlum sé samfélagslegt efni frekar en fréttir eða fréttatengt efni. Birtíngur hefur skilað andmælum vegna málsins. 

Ekki átakalaust að breyta rót­grónu félagi

Sigríður Dögg Auðunsdóttir er formaður Blaðamannafélags Íslands. Hún mæðist í mörgu sem slík og ræðir meðal annars skilgreiningarvanda blaðamennskunnar, fjölmiðlalæsi, skilningsleysi á faginu sem teygir sig alla leið upp í dómstóla og segir frá erfiðasta atviki sem hún hefur þurft að takast á við sem formaður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×