Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Smári Jökull Jónsson skrifar 15. október 2026 06:30 Snjóþekja er á Holtavörðuheiði og óvissustig víða á vegum á Vestfjörðum og Norðurlandi. Vísir/Atli Gular viðvaranir eru enn í gildi á Ströndum, Norðurlandi vestra, Norðurlandi eystra og Austurlandi. Veðurfræðingur segir veðrið að mestu leyti hafa gengið eftir en verið verra á sumum stöðum en spár gerðu ráð fyrir.
Gul viðvörun vegna norðanhríðar er í gildi til klukkan 7:00 á Ströndum og Norðurlandi vestra en þar má búast við norðan 13-18 m/s, snjókomu og versnandi færð. Vegir eru víða á óvissustigi en snjóþekja og éljagangur er á Holtavörðuheiði og unnið að mokstri. Á Öxnadalsheiði er snjóþekja og hálka og þá er óvissustig á hringveginum um Ljósavatnsskarð, Fljótsheiði og Mývatnsöræfi. Þar gæti vegum verið lokað með stuttum fyrirvara en gul viðvörun er í gildi á Norðurlandi eystra til 10:00 og á Austurlandi að Glettingi til 11:00. Birgir Örn Höskuldsson, veðurfræðingur hjá Veðurstofunni, segir veðrið ekki gengið niður á öllu landinu. „Það versta er yfirstaðið en það er ennþá allhvöss eða hvöss norðvestanhátt og hríð á Norður- og Norðausturlandi. En það dregur úr bæði vindi og úrkomu í dag og við getum sagt að um hádegi verði komið sæmilega skaplegt veður á mestöllu landinu. Þó mun enn blása nokkuð á Suðausturlandi og Austfjörðum en eftir hádegi verður ekkert í gangi sem við erum að vara við,“ sagði Birgir í viðtali við fréttastofu nú á sjöunda tímanum. „Verra en við var búist“ Hann segir veðrið hafa í aðalatriðum verið í samræmi við spár en verra á sumum stöðum en menn bjuggust við. „Til dæmis á Siglufirði. Það er alveg þekkt í þessari vindátt að það geti orðið býsna hviðótt en maður veit aldrei almennilega fyrirfram. Við getum sagt að veðrið, miðað við tjónið sem varð, hafi verið verra en við var búist.“ Þá segir hann að snjóalög muni sjást betur þegar birti. „Á Vestfjörðum og á Norðurlandi er einhver snjór á láglendi en það mun náttúrulega sjást betur nú þegar birtir,“ segir Birgir Örn hjá Veðurstofunni.
Veður Færð á vegum Mest lesið „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Erlent Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Innlent Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Innlent Sköpuðust aðstæður fyrir „snælduvitlaust veður“ á Siglufirði Innlent Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Innlent Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“ Innlent Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Erlent Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Fleiri fréttir Anna Valdimarsdóttir er látin Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“ Borkjarnar vegna Eyjaganga gefa tilefni til bjartsýni Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Sköpuðust aðstæður fyrir „snælduvitlaust veður“ á Siglufirði Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Kallar 25 ára þak á verðtryggð lán sýndarmennsku Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Óþolandi leyndarhyggja ríki um niðurstöður PISA-prófa Vill skýr viðbrögð við trassaskap í losunarmálum í lög Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Sjá meira